Fréttir

true

Mögulega síðasta skemmtiferðaskipið þetta árið

Skemmtiferðaskipið Maud MS frá Hurtigruten kom óvænt til Grundarfjarðarhafnar í nótt. Skipið hafði þá komið degi fyrr frá Grænlandi vegna veðurs og nýtti aukadaginn í Grundarfirði þar sem farþegar fóru í gönguferðir, kayaksiglingar, hjólreiðatúra og þess háttar. Ef veður leyfir þá kemur skipið mögulega aftur næsta miðvikudag, en það á eftir að ráðast samkvæmt upplýsingum…Lesa meira

true

Skora á Samkaup að endurmeta tegund verslunar í Dölum

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti í síðustu viku áskorun til stjórnar og stjórnenda Samkaupa um að taka til endurskoðunar rekstrarform matvöruverslunar í byggðarlaginu. Sú breyting leiddi vorið 2020 til mikillar hækkunar á matvöruverði og við það geta íbúar ekki unað. „Við í Dalabyggð erum að leita allra leiða til að efla samfélagið okkar og innviði til hagsældar…Lesa meira

true

Vilja að stjórnvöld grípi í taumana og setji skýrari reglur um fiskeldi

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt ályktun varðandi göngu eldislaxa í laxveiðiár, en eins og kunnugt er hafa veiðst eldislaxar í ám í sýslunni sem sloppið hafa úr sjókvíum við Vestfirði. „Sveitarstjórn Dalabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri staðreynd að nú séu að veiðast eldislaxar í ám í sveitarfélaginu líkt og reyndin…Lesa meira

true

Enn eitt óhappið á Skógarstrandarvegi

Jón Zimsen á Innra-Leiti var á suðurleið í síðustu viku um Skógarstrandarveg, milli Dala og Stykkishólms, og sendi Skessuhorni meðfylgjandi ljósmynd. Kveðst hann hafa ekið fram á tvo bíla með sprungin dekk og síðar um daginn var bíllinn á meðfylgjandi mynd utan vegar við Valshamarsána. Þar hafnaði hann eftir margar veltur og snéri öfugt miðað…Lesa meira

true

Röstin á siglingu til Íslands

Vegagerðin skrifaði undir kaupsamning við Torghatten Nord um kaup á ferjunni Röst á föstudaginn í síðustu viku. Ferjan lagði strax í kjölfarið af stað til landsins og er hún því á leiðinni áleiðis til Íslands, tæplega hálfnuð á siglingunni milli Noregs og Íslands. Áhöfn frá Torghatten Nord siglir ferjunni en um borð eru íslenskir skipstjórnarmenn…Lesa meira

true

Sögusíðan Á sigurslóð opnuð formlega

Heimasíðan Á sigurslóð (asigurslod.is) var kynnt til leiks á föstudaginn í Tónbergi á Akranesi og voru margir áhugamenn um knattspyrnu mættir á staðinn. Feðgarnir Jón Gunnlaugsson og Stefán Jónsson hafa undanfarna áratugi safnað ómetanlegum heimildum um sögu knattspyrnunnar á Akranesi. Á heimasíðunni, sem var opnuð rétt fyrir leik ÍA og Gróttu á laugardaginn, kemur fram…Lesa meira

true

Enginn íslenskur háskóli nær á lista 300 fremstu

„Íslenskir háskólanemar eiga skilið betra háskólanám og samfélagið á skilið að hér séu háskólar á heimsmælikvarða. Sú er því miður ekki raunin. Hin Norðurlöndin hafa öll átt skóla á meðal 100 bestu háskóla heims, en enginn íslenskur háskóli nær á listann yfir 300 bestu.“ Þetta segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla,- inaðar- og nýsköpunarráðherra. „Við eigum…Lesa meira

true

Víkingur vann sigur á botnliðinu í lokaleiknum

Víkingur Ólafsvík tók á móti KV í lokaumferð 2. deildar karla í knattspyrnu á föstudaginn og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Gestirnir komust yfir strax á þriðju mínútu þegar Askur Jóhannsson skoraði fyrir KV úr vítaspyrnu en aðeins fjórum mínútum síðar jafnaði Abdelhadi Khalok fyrir Víking. Björn Axel Guðjónsson kom síðan Víkingi yfir eftir tæpan hálftíma…Lesa meira

true

Kári með sigur á Magna í síðasta leik sumarsins

Kári og Magni mættust í lokaumferð 3. deildar karla í knattspyrnu á föstudaginn og var viðureignin í Akraneshöllinni. Það var mikil orka í leikmönnum í fyrri hálfleik, heimamenn í Kára voru þó með yfirhöndina og áttu nokkur færi sem þeim tókst ekki að nýta. Fyrsta mark leiksins kom sex mínútum fyrir hálfleik eftir frábæra sókn…Lesa meira

true

Frændur fagna skógi – fyrirlestur í Snorrastofu

Annað kvöld, þriðjudaginn 19. september kl. 20.00, mun Óskar Guðmundsson í Véum í Reykholti halda fyrirlestur í Snorrastofu. Í tilkynningu segir að margir Borgfirðingar komi við sögu í nýrri bók um skógarsamvinnu Íslendinga og Norðmanna sem Óskar kynnir á fyrirlestrinum. „Frændur fagna skógi“ segir sögu samskipta Norðmanna og Íslendinga með áherslu á skiptiferðir skógræktarfólks frá…Lesa meira