
Enginn íslenskur háskóli nær á lista 300 fremstu
„Íslenskir háskólanemar eiga skilið betra háskólanám og samfélagið á skilið að hér séu háskólar á heimsmælikvarða. Sú er því miður ekki raunin. Hin Norðurlöndin hafa öll átt skóla á meðal 100 bestu háskóla heims, en enginn íslenskur háskóli nær á listann yfir 300 bestu.“ Þetta segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla,- inaðar- og nýsköpunarráðherra. „Við eigum frábæra kennara og hæfileikaríka og metnaðargjarna nemendur en kerfið hefur leitt til ákveðinnar sóunar og hvorki veitt skólunum þann stuðning né búið til þá hvata sem eru forsenda framúrskarandi árangurs,“ segir Áslaug Arna. Hún kynnti í dag gagngera kerfisbreytingu á fjármögnun háskólanna sem hún segir forsendu þess að íslenskir háskólar geti náð betri árangri. Gagnsæi hins nýja fyrirkomulags segir hún tryggja að skólarnir sjái að meiri og betri árangur skili þeim auknu fjármagni.