Fréttir

true

Tóku þátt í Evrópumóti iðn- og verkgreina

Dagana 5. – 9. september fór fram í Gdańsk í Póllandi Evrópumót iðn-, verk- og tæknigreina, Euroskills 2023. Ellefu ungir og efnilegir keppendur frá Íslandi tóku þátt í jafn mörgum iðn- og verkgreinum, en Ísland hefur aldrei átt jafn marga þátttakendur og á Evrópumótinu í ár. Verðlaunaafhending og lokaathöfn Euroskills 2023 fór fram með pompi…Lesa meira

true

Sérsveitin var send til Grundarfjarðar

Í gærkvöldi var nokkur viðbúnaður lögreglu við íbúðarhús í Grundarfirði. Tilkynnt hafði verið um mann sem handlék skotvopn. Sérsveit ríkislögreglustjóra var með töluverðan viðbúnað á vettvangi, en í ljós kom að vopnið reyndist skaðlaus eftirlíking. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, staðfesti í samtali við fréttastofu visir.is að sérsveit ríkislögreglustjóra hafi handtekið manninn…Lesa meira

true

Hönnunarvinna og frumkvöðlahugsun með Knex

Á heimasíðu Grundaskóla á Akranesi er sagt frá áhugaverðu kennslutæki til að víkka skilning nemenda á stærðfræði. Um er að ræða svokallaða Knex-kubba, en þeir eru afar gagnlegir þegar unnið er með margvísleg stærðfræðihugtök og frumkvöðlahugsun. Knex kubbar eru reyndar fáanlegir í ýmsum útgáfum og einnig fyrir leikskólabörn. „Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum…Lesa meira

true

Útrýmingarsala, prútt og tilboð á Nytjamarkaði

Nytjamarkaður Körfuknattleiksdeildar Skallagríms verður opinn í dag frá klukkan 15-19, á morgun mánudag kl. 12-13.30 og eftir samkomulagi. Nú verður útrýmingarsala, prútt og tilboð því þetta verður jafnframt síðasta opnun í gamla sparisjóðshúsinu við Borgarbraut 14. „Pokatilboð dagsins, diskar glös borðbúnaður og bollar 1500 kr pokinn. (Fjölnotapokinn frá Bónus/nettó, takið slíkan með). Ofur pokatilboð (gráu…Lesa meira

true

Andlát – Jón Baldursson

Á síðu Bridgesambands Íslands er greint andláti Jóns Baldurssonar sem var einn fremsti bridgespilari landsins fyrr og síðar. Jón lést aðfararnótt laugardags. „Jón Baldursson var án nokkurs vafa besti bridgespilari Íslands fyrr og síðar. Hann varð 16 sinnum Íslandsmeistari í sveitakeppni í bridge og Íslandsmeistari í tvímenningskeppni sex sinnum. Hann varð Norðurlandameistari 1988, 1994, 2013,…Lesa meira

true

Úr sarpi: Hefur skoðað hátt í fjögur þúsund jarðir

Rætt við Magnús Leópoldsson um jarðasölur, gæsluvarðhald að ósekju og tilveruna – úr jólablaði Skessuhorns 2021 Fáir, ef nokkrir, hafa jafn mikla þekkingu á jörðum á Íslandi og Magnús Leópoldsson löggiltur fasteignasali. Meðfram almennri sölu fasteigna í fyrirtæki sínu, Fasteignamiðstöðinni, hefur hann sérhæft sig í jarðasölu og skoðað meirihluta bújarða á landinu. Við það nýtur…Lesa meira

true

Unnið er að sameiningu háskólanna á Bifröst og Akureyri

Margrét Jónsdóttir Njarðvík hefur verið rektor Háskólans á Bifröst undanfarin þrjú ár og á tæp tvö ár eftir af skipunartíma sínum. Í opnuviðtali sem birtist í sunnudagsblaði Morgunblaðsins í dag upplýsir Margrét hins vegar að í gangi séu viðræður um sameiningu Háskólans á Bifröst og Háskólans á Akureyri. Samkvæmt því gæti að óbreyttu farið að…Lesa meira

true

Stórir réttadagar framundan

Undanfarna daga hafa heiðar og afréttir verið smalaðir víða um vestanvert landið. Í dag og næstu daga verða réttir á a.m.k. tólf stöðum í Borgarfirði, á Mýrum og í Dölum. Veður var víða slæmt fyrir leitamenn í gær; suðvestan rok og rigning á heiðum. Um tíma í gærkvöldi var óttast um týndan smala í Skarðsheiði,…Lesa meira

true

Erfðablöndun eldislax getur gert útaf við íslenska laxastofninn

Matvælastofnun hefur nú staðfest að strokulax frá Arctic Sea Farm hafi fundist í fjölda ám um allt norðvestan- og vestanvert landið, en í síðasta mánuði fundust tvö göt á sjókví fyrirtækisins í Patreksfirði. Stofnuninni hafa borist upplýsingar um upprunagreiningu á meintum eldislöxum sem veiðst hafa í Patreksfirði (6), Örlygshöfn (2), Sunndalsá (6), Mjólká (1), Laugardalsá…Lesa meira

true

Þýðingarmikill leikur í Njarðvík í dag

Í dag klukkan 14 fer fram afar þýðingarmikill leikur fyrir karlalið ÍA í fótbolta. Spilað verður við Njarðvík á Rafholtsvellinum syðra. Eins og staðan er núna í deildinni eru Skagamenn líklegastir til að fara beint upp og lið Aftureldingar, Fjölnis, Vestra og Leiknis R. á leið í umspil um hitt sætið sem gefur þátttökurétt í…Lesa meira