Þýðingarmikill leikur í Njarðvík í dag

Í dag klukkan 14 fer fram afar þýðingarmikill leikur fyrir karlalið ÍA í fótbolta. Spilað verður við Njarðvík á Rafholtsvellinum syðra. Eins og staðan er núna í deildinni eru Skagamenn líklegastir til að fara beint upp og lið Aftureldingar, Fjölnis, Vestra og Leiknis R. á leið í umspil um hitt sætið sem gefur þátttökurétt í Bestu deildinni á næsta tímabili. Skagamenn eru fyrir leikinn með 43 stig og hafa unnið fjóra af síðustu fimm leikjum og gert eitt jafntefli. Afturelding er í öðru sæti með 40, Fjölnir 36 og Vestri í fjórða sæti með 33 stig. Í neðri hlutanum er gífurleg spenna og þar geta sex lið enn fallið, Grindavík er með 25 stig, Þór 24 stig og Þróttur R., Grótta, Njarðvík og Selfoss eru öll með 23 stig en neðst er lið Ægis með níu stig og er löngu fallið. Væntanlega munu því Njarðvíkingar ekki gefa neitt eftir þegar þeir gulklæddu koma í heimsókn.

Þýðingarmikill leikur í Njarðvík í dag - Skessuhorn