
Erfðablöndun eldislax getur gert útaf við íslenska laxastofninn
Matvælastofnun hefur nú staðfest að strokulax frá Arctic Sea Farm hafi fundist í fjölda ám um allt norðvestan- og vestanvert landið, en í síðasta mánuði fundust tvö göt á sjókví fyrirtækisins í Patreksfirði. Stofnuninni hafa borist upplýsingar um upprunagreiningu á meintum eldislöxum sem veiðst hafa í Patreksfirði (6), Örlygshöfn (2), Sunndalsá (6), Mjólká (1), Laugardalsá (1), Ísafjarðará (1), Selá í Ísafjarðardjúpi (2), Miðfjarðará (1), Hópinu (1), Víðidalsá (1), Vatnsdalsá (3), Laxá í Dölum (1) og Staðarhólsá/Hvolsá (1). Alls voru 34 laxar sendir til greiningar og reyndust sjö þeirra sem veiddust í Mjólká vera villtir. Af hinum 27 var einn eldislax sem ekki var hægt að rekja en hinir 26 voru eldislaxar sem var hægt að rekja til sex hænga sem voru notaðir til framleiðslu á seiðum sem sett voru út á eldissvæði Arctic Sea Farm við Kvígindisdal í Patreksfirði haustið 2021. Tveir af þessum sex hængum voru einnig notaðir til framleiðslu á seiðum sem sett voru út á eldissvæði Arnarlax við Tjaldanes í Arnarfirði haustið 2021. Eldislaxinn sem nú er að veiðast í ám um allt norðvestanvert landið er sex til sjö kílóa fiskar og skera sig mjög úr villtum laxi úr sjó.