Fréttir

true

Eldislax slapp úr kví við Kvígindisdal í Patreksfirði

Síðastliðinn sunnudag 20. ágúst tilkynnti fyrirtækið Arctic Sea Farm um tvö göt á kví nr. 8 á eldissvæði sínu við Kvígindisdal í Patreksfirði. Götin voru um 20 x 30 cm að stærð og á um tveggja metra dýpi og hlið við hlið. Á þessum tíma voru rúmlega 70.000 fiskar í kvínni um 5,5 kg að…Lesa meira

true

Fleiri skútur koma við í höfnum Snæfellsbæjar

Talsvert hefur verið um skútur í höfnum á Snæfellsnesi í sumar. Að sögn hafnarvarðar í Ólafsvík er mikil aukning í komu þeirra í sumar og talsvert fleiri en á síðustu árum. „Við höfum ekki enn tekið saman hversu margar skútur hafa komið það sem er af þessu sumri,“ segir hafnarvörður í samtali við Skessuhorn. „En…Lesa meira

true

Nóg að gera í rekstri matarvagns á Arnarstapa

Frista food matarvagn á Arnarstapa á Snæfellsnesi nýtur mikilla vinsælda hjá ferðamönnum sem koma við til að skoða fallega náttúru og fuglalífið. Þangað er stöðugur straumur ferðamanna allt sumarið. Tékkinn Filip Procházka hefur rekið matarvagninn frá því á síðasta ári og er óhætt að segja að Filip hafi slegið í gegn með góðan en jafnframt…Lesa meira

true

Skagakonur með stórsigur á móti ÍH

ÍA vann frábæran 6-1 útisigur gegn liði ÍH í annarri deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn í Skessunni í Hafnarfirði. Fyrir leik voru liðin jöfn að stigum í 5. og 6. sæti með 29 stig og ljóst að með sigri í leiknum gat það lið náð öðru sætinu. Það var ljóst frá…Lesa meira

true

Réttir á Vesturlandi í haust

Framundan er tími gangna og rétta um allt land. Líkt og undanfarin ár taka sveitarfélög í landinu saman upplýsingar um réttardaga og senda Bændasamtökum Íslands sem nú hafa birt lista yfir réttir á Vesturlandi. Fyrstu réttir verða um næstu helgi, þegar réttað verður í Nesmelsrétt í Hvítársíðu laugardaginn 2. september og sunnudaginn 3. september verður…Lesa meira

true

Nýja rennibrautin brátt tilbúin í Ólafsvík

Í sumar hefur verið unnið við að koma nýrri vatnsrennibraut fyrir við sundlaugina í Ólafsvík. Rennibrautin er um sjö metrar á hæð og rörin í henni tæpir 57 metrar að lengd. Það er fyrirtækið ÞG Borg sem hefur unnið að uppsetningu rennibrautarinnar. Minni rennibraut sem sett var upp í sumar er tilbúin nú þegar, en…Lesa meira

true

Kolbeinn Óskar útnefndur íbúi ársins

Kolbeinn Óskar Bjarnason bóndi á Kötlulandi við Reykhóla var á Reykhóladögum útnefndur íbúi ársins í hreppnum. Hann er eins og fram kom í Skessuhorni fyrr á þessu ári yngsti bóndi landsins, en hann varð 18 ára í júlí. „Umsagnir sem fylgdu tilnefningunum voru einróma; eðaldrengur með hjarta úr gulli, hjálpsamur og tillitssamur,“ segir á vef…Lesa meira

true

Villa í upplýsingaskilti

Við Elínarhöfða í Kalmansvík á Akranesi er að finna listaverkið Elínarsæti eftir Guttorm heitinn Jónsson sem lést árið 2014. Listaverkið var sett upp á þessum stað af Akraneskaupstað árið 2000. Þjóðsagan segir að nafnið Elínarhöfði komi frá Elínu, systur Sæmundar fróða. Elín átti eina systur að nafni Halla en hún bjó í Straumfirði á Mýrum.…Lesa meira

true

Sveitarstjórn hélt vinnufund á Vogi

Síðasta þriðjudag hélt sveitarstjórn Dalabyggðar vinnufund sinn að Vogi á Fellsströnd. Meirihluti aðal- og varamanna mætti á fundinn ásamt starfsfólki skrifstofu sveitarfélagsins. Fundurinn hófst á yfirferð Haraldar Reynissonar endurskoðanda Dalabyggðar vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2023-2024. Síðan fór Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri yfir stöðu ýmissa verkefna frá kosningum og vinnufundi sveitarstjórnar frá því í fyrra og…Lesa meira

true

Ætla að móta reglur um farsímanotkun í grunnskólum

Kynnt hefur verið í ríkisstjórn sú ákvörðun Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, að setja af stað vinnu sem miðar að því að gefa út reglur um farsímanotkun í grunnskólum landsins, en hún er óvíða eins mikil og hér á landi. Verða reglurnar unnar í samráði við foreldra og börn, sveitarfélög, skólastjórnendur, kennara og aðra…Lesa meira