Fréttir

true

Hreðavatnsskáli lokaður seinni part sumarsins

Hreðavatnsskáli í Norðurárdal er þekktur staður á landsvísu. Þar var löngum viðkomustaður ferðamanna og rómuð böll á árum áður, sem og önnur mannamót. Lítil starfsemi hafði verið í skálanum um nokkurra ára skeið þegar ungt par sem starfar í sveitinni keypti skálann fyrir tveimur árum. Það voru Adam Logi Halldórsson og Hera Jóhannsdóttir sem tengjast…Lesa meira

true

Guðrún Karitas setti meistaramótsmet í sleggjukasti

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fór fram um síðustu helgi á ÍR vellinum í Skógarseli í Breiðholti. Meistaramótið sem var það 97. í röðinni er hápunktur sumarsins og var allt besta frjálsíþróttafólk landsins skráð til leiks. Guðrún Karitas Hallgrímsdóttir sleggjukastari frá Vatnshömrum í Andakíl sem keppir fyrir ÍR setti meistaramótsmet þegar hún stórbætti metið í…Lesa meira

true

Gefur út bókina Kurteisissonnettan og önnur kvæði

Gunnari J Straumland kennara og myndlistarmanni er sitthvað til lista lagt. Nú í vikunni kom út ljóðabók hans Kurteisissonnettan og önnur kvæði. Þetta er önnur ljóðabókin sem eftir hann kemur og er það Sæmundur sem gefur út. Fyrri bókin nefndist Höfuðstafur, háttbundin kvæði og kom út í lok árs 2019. Nýja bókin er á kiljuformi,…Lesa meira

true

ÍA fékk styrk upp á tæpa hálfa milljón

Fram kemur á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, að alls bárust fjórtán umsóknir í mannvirkjasjóð KSÍ fyrir árið 2023 og er heildarkostnaður við áætlaðar framkvæmdir 594 milljónir króna. Til úthlutunar úr sjóðnum í ár voru 40 milljónir. Knattspyrnufélagið Höttur á Egilsstöðum fékk mest af öllum félögum úr úthlutuninni en Höttur fékk næstum 16 milljónir af þeim…Lesa meira

true

Væta frá Leirulæk hlaut 10 fyrir skeið

Hestavefurinn Eiðfaxi greinir frá því að yfirlitssýning hafi farið fram á Hellu á föstudaginn. Þar hlaut fimm vetra hryssan Væta frá Leirulæk 10 fyrir skeið, en hana sýndi Þorgeir Ólafsson landsliðsmaður og Borgnesingur. Þorgeir mun keppa á stóðhestinum Goðasteini frá Haukagili á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem fram fer í Hollandi dagana 8.-13. ágúst næstkomandi. Væta…Lesa meira

true

Stærsta tap sumarsins hjá Reyni kom á móti RB

Það var alger einstefna í leik RB úr Reykjanesbæ og Reynis frá Hellissandi sem fram fór á föstudagskvöldið í Nettóhöllinni. Leikmenn RB sem eru efstir í A riðli 5. deildar karla í knattspyrnu gáfu alls engin grið og skoruðu átta mörk í hvorum hálfleik, lokatölur 16-0 RB í hag. Sjö mörk komu á fyrstu tuttugu…Lesa meira

true

Skólahald á Bifröst heldur áfram óbreytt

Mygla kom upp í húsakynnum Háskólans á Bifröst síðasliðið vor en vegna ástandsins var m.a. útskrift skólans haldin í Hjálmakletti í Borgarnesi í júní, þar sem Menntaskóli Borgarfjarðar er til húsa. Blaðamaður sló á þráðinn til Margrétar Jónsdóttur Njarðvík, rektors skólans, sem segir skólahald verða með óbreyttum hætti næsta haust. ,,Við erum búin að flytja…Lesa meira

true

Skallagrímur með sterkan sigur á Stólunum

Það var mikið undir þegar lið Skallagríms og Tindastóls mættust í 4. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið á iðjagrænum Skallagrímsvelli. Tindastóll hafði unnið þrjá leiki í röð í deildinni og nálgast toppbaráttuna á meðan Skallarnir þurftu nauðsynlega sigur til að slíta sig frá tveimur neðstu liðunum. Gestirnir voru með vindinn í bakið í fyrri…Lesa meira

true

Bæjarhátíðin Smástund í Grundarfirði – myndir

Um liðna helgi fór bæjarhátíðin Smástund í Grundarfirði fram í mildu og góðu veðri. Hátíðin var minni í sniðum þetta árið en venjulega og er stefnan að hafa stóra hátíð annað hvert ár. Allir gátu þó fundið eitthvað við sitt hæfi og var mikil ánægja með að hafa viðburðina í Þríhyrningnum svokallaða þar sem gróður,…Lesa meira

true

Víkingur tapaði fyrir Völsungi í hörkuleik

Það má með sanni segja að það hafi verið mikill hasar og dramatík undir lokin í leik Völsungs og Víkings Ólafsvíkur í 2. deild karla í knattspyrnu sem fram fór á Húsavík á laugardaginn. Völsungur var með eins marks forystu þegar lítið var eftir og gestirnir þjörmuðu að heimamönnum til að ná jöfnunarmarkinu. Þegar leikurinn…Lesa meira