
Þorgeir og Væta. Ljósm. Eiðfaxi
Væta frá Leirulæk hlaut 10 fyrir skeið
Hestavefurinn Eiðfaxi greinir frá því að yfirlitssýning hafi farið fram á Hellu á föstudaginn. Þar hlaut fimm vetra hryssan Væta frá Leirulæk 10 fyrir skeið, en hana sýndi Þorgeir Ólafsson landsliðsmaður og Borgnesingur. Þorgeir mun keppa á stóðhestinum Goðasteini frá Haukagili á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem fram fer í Hollandi dagana 8.-13. ágúst næstkomandi. Væta hlaut fyrir sköpulag 8,34 og fyrir hæfileika 8,42 sem gerir í aðaleinkunn 8,39.