
Gunnar J Straumland með bók sína Kurteisissonnettan og önnur kvæði. Ljósm. mm
Gefur út bókina Kurteisissonnettan og önnur kvæði
Gunnari J Straumland kennara og myndlistarmanni er sitthvað til lista lagt. Nú í vikunni kom út ljóðabók hans Kurteisissonnettan og önnur kvæði. Þetta er önnur ljóðabókin sem eftir hann kemur og er það Sæmundur sem gefur út. Fyrri bókin nefndist Höfuðstafur, háttbundin kvæði og kom út í lok árs 2019. Nýja bókin er á kiljuformi, 224 blaðsíður að lengd og málverk á bókarkápu nefnist „Þeir bræður frá Síam“ og er sömuleiðis eftir Gunnar.