
Margt var um manninn í Þríhyrningnum og mikið um að vera. Ljósmyndir: tfk
Bæjarhátíðin Smástund í Grundarfirði – myndir
Um liðna helgi fór bæjarhátíðin Smástund í Grundarfirði fram í mildu og góðu veðri. Hátíðin var minni í sniðum þetta árið en venjulega og er stefnan að hafa stóra hátíð annað hvert ár. Allir gátu þó fundið eitthvað við sitt hæfi og var mikil ánægja með að hafa viðburðina í Þríhyrningnum svokallaða þar sem gróður, leiktæki og listaverk njóta sín.