
Rákahöfrung rak á fjöru neðan við bæinn Bjarteyjarsand á Hvalfjarðarströnd á miðvikudaginn. Frá því er greint á FB síðu bæjarins að um hafi verið að ræða tveggja metra langt karldýr. Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar hafa nú tekið hræið til frekari rannsókna. „Þrátt fyrir að vera meðal útbreiddustu höfrungategunda á jörðinni, er afar sjaldgæft að finna rákahöfrunga (striped…Lesa meira








