Brúin yfir Dunká. Ljósmyndir; mm

Brúarframkvæmdir á Skógarströnd vel á veg komnar

Unnið er við lagningu nýs Snæfellsnesvegar (54) um Skógarströnd á um 5,4 km kafla milli Ketilsstaða og Gunnarsstaða. Það er Borgarverk ehf. sem er verktakinn. Þá er nánast búið að byggja tvær brýr á þessari leið, yfir árnar Dunká og Skraumu. Það eru fyrirtækin Húsheild og Hyrna sem eru undirverktakar Borgarverks í brúarvinnunni.

Brúarframkvæmdir á Skógarströnd vel á veg komnar - Skessuhorn