Fréttir

true

Ansi stutt á fiskimiðin

Enn fiskast vel á strandveiðarnar og á mánudaginn voru flestir bátar í Snæfellsbæ með dagskammtinn sinn. Að vísu er nú lengra að sækja á miðin til þess að fá afla en það er árvisst. Lengra  er að sækja en í maímánuði þar sem aðeins þarf að fara rétt út fyrir hafnarkjaftinn í mok aflabrögð. Börkur…Lesa meira

true

Endurmála regnbogagötuna

Starfsfólk Snæfellsbæjar stóð í ströngu við að endurmála regnbogagötuna, Kirkjutún, í Ólafsvík í gær. Gatan var fyrst máluð í fyrrasumar í tilefni Hinseginhátíðar Vesturlands sem haldin var í Ólafsvík það árið. „Regnboginn í Kirkjutúninu hefur mælst vel fyrir hjá heimamönnum og gestum,“ segir á Facebook-síðu Snæfellsbæjar, þar sem þessar myndir voru einnig birtar.Lesa meira

true

Á æskuslóðum Helgu Brögu á Akranesi í dag

Tökur á þáttaröðinni Á æskuslóðum hófust í dag þegar þau Viktoría Hermannsdóttir, Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson fylgdu Helgu Brögu Jónsdóttur til Akraness ásamt tveimur tökumönnum. Þau hófu tökur í hádeginu á Akratorgi og munu fara um æskuslóðir Helgu í dag, m.a. í Bíóhöllina þar sem Helga steig sín fyrstu skref sem leikkona í hlutverki…Lesa meira

true

Veiðar á langreyðum stöðvaðar

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur tekið ákvörðun um að stöðva tímabundið veiðar á langreyðum fram til 31. ágúst nk. Eftirlitsskýrsla Matvælastofnunar um velferð hvala við veiðar á langreyðum barst ráðuneytinu í maí 2023 en niðurstaða skýrslunnar er að aflífun dýranna hafi tekið of langan tíma út frá meginmarkmiðum laga um velferð dýra. Matvælastofnun fól í kjölfarið fagráði…Lesa meira

true

Skallagrímur úr leik eftir framlengingu og vító á móti KFA

Skallagrímur sem er í neðri hlutanum í 4. deild og KFA sem er í toppbaráttu í 2. deild mættust í fyrstu umferð í bikarkeppni neðri deilda í knattspyrnu, Fótbolti.net.bikarnum í gærkvöldi og var leikurinn á Skallagrímsvelli. Gestirnir komust yfir á 21. mínútu með marki frá Heiðari Snæ Ragnarssyni en Alejandro Serralvo jafnaði fyrir Skallagrím með…Lesa meira

true

Gunnhildur Lind er Listamanneskja Borgarbyggðar

Ljósmyndarinn Gunnhildur Lind Hansdóttir tók við titlinum Listamanneskja Borgarbyggðar á hátíðarhöldum í Skallagrímsgarði laugardaginn síðasta, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Var það sveitarstjórinn Stefán Broddi Guðjónsson sem veitti Gunnhildi viðurkenninguna. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Gunnhildar sem sagðist mjög hissa yfir nafnbótinni. ,,Hér í kring er svo rosalega mikið af frambærilegu listafólki, þegar ég hugsa um…Lesa meira

true

Nýsköpunarsetur er liður í að fjölga atvinnutækifærum

Nýsköpunar- og frumkvöðlasetri Dalabyggðar var komið á laggirnar í mars 2022. Megin tilgangur opnunar setursins var að opna aðstöðu í Dalabyggð fyrir fólk sem vinnur að nýsköpunarverkefnum og til að fjölga atvinnutækifærum á svæðinu, þar sem í setrinu er samvinnurými sem tilvalið er fyrir störf án staðsetningar. Nýsköpunarsetrið er staðsett í stjórnsýsluhúsinu við Miðbraut 11…Lesa meira

true

Flottur fyrsti dagur í Hítará á Mýrum

,,Þetta var frábær opnunardagur í Hítará á Mýrum og allir fengu fisk. Það hefur talsvert gengið af fiski í ána,“ sagði Haraldur Eiríksson um opnun árinnar sem gaf flotta veiði, en alls veiddust tíu laxar á opnunardaginn. Ekki veiddist þó á allar stangirnar. Grímsá gaf þrjá laxa fyrsta daginn sem veiða mátti í ánni og…Lesa meira

true

Ýmir og Kári gerðu jafntefli í Kórnum

Á föstudagskvöldið áttust við lið Ýmis og Kára í 3. deild karla í knattspyrnu og var leikurinn innan dyra í knattspyrnuhöllinni Kórnum í Kópavogi. Káramenn byrjuðu betur í leiknum fyrsta hálftímann, voru mun meira með boltann og fengu nokkur góð færi sem þeir náðu ekki að nýta. Eftir skyndisókn kom Hákon Freyr Jónsson heimamönnum í…Lesa meira

true

Sæmd riddarakrossi fyrir frumkvöðlastarf í landbúnaði

Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir bóndi var sæmd riddarakrossi, heiðursmerki íslensku fálkaorðunnar, fyrir frumkvöðlastarf í landbúnaði síðastliðinn laugardag, 17. júní. Jóhanna og Þorbjörn Oddsson hafa ræktað geitur að Háafelli síðan 1989 en ákváðu um síðustu aldamót að vinna markvisst að því að kynna íslenska geitastofninn og hans afurðir. Fyrir ellefu árum síðan stofnuðu þau Geitfjársetur að Háafelli…Lesa meira