
Börkur Hrafn að fanga vænan ufsa við innsiglingarbaujuna í Ólafsvík árdegis á mánudag. Ljósm. af
Ansi stutt á fiskimiðin
Enn fiskast vel á strandveiðarnar og á mánudaginn voru flestir bátar í Snæfellsbæ með dagskammtinn sinn. Að vísu er nú lengra að sækja á miðin til þess að fá afla en það er árvisst. Lengra er að sækja en í maímánuði þar sem aðeins þarf að fara rétt út fyrir hafnarkjaftinn í mok aflabrögð. Börkur Hrafn Árnason sem rær á bát sínum ÁS SH þarf hins vegar ekki að sækja langt til þess að fá sinn skammt, hans mið eru nálægt landi og þekkir hann sín fiskimið eins og lófann á sér.