Að loknu dagsverki. Ljósm. Snæfellsbær.

Endurmála regnbogagötuna

Starfsfólk Snæfellsbæjar stóð í ströngu við að endurmála regnbogagötuna, Kirkjutún, í Ólafsvík í gær. Gatan var fyrst máluð í fyrrasumar í tilefni Hinseginhátíðar Vesturlands sem haldin var í Ólafsvík það árið. „Regnboginn í Kirkjutúninu hefur mælst vel fyrir hjá heimamönnum og gestum,“ segir á Facebook-síðu Snæfellsbæjar, þar sem þessar myndir voru einnig birtar.

Endurmála regnbogagötuna - Skessuhorn