Fréttir

true

Landbúnaðarháskóli Íslands tekinn við formennsku í NOVA

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur tekið við formennsku NOVA University Network til næstu þriggja ára og tekur við keflinu frá Landbúnaðarháskólanum í Svíþjóð (SLU) sem gegnt hefur formennsku undanfarin ár. NOVA er samstarf norrænna háskóla á sviði landbúnaðar, dýralækninga, skógfræði og skyldra greina með áherslu á sameiginleg námskeið fyrir doktorsnema. Sjö norrænir háskólar standa að samstarfinu, en…Lesa meira

true

Leggja til að byggt verði 2.525 fermetra hús fyrir fjölbreytta starfsemi

Stýrihópur Akraneskaupstaðar um Kalmansvelli 5 var stofnaður í fyrravor um uppbyggingu á húsnæði undir áhaldahús, dósamóttöku Fjöliðjunnar og nytjamarkaðinn Búkollu. Hópurinn hefur nú skilað af sér lokaskýrslu. Lagt er til að byggt verði 2.525 fermetra hús úr steinsteyptum einingum að Kalmansvöllum 5 á Akranesi sem hýsa muni ofangreinda starfsemi auk geymslu sem nýtist m.a. vinnuskólanum.…Lesa meira

true

Heilbrigðisstarfsfólki heimilt að vinna til 75 ára aldurs

Alþingi hefur samþykkt frumvarp Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem felur í sér tímabundna undanþágu frá almennri reglu um 70 ára starfslokaaldur ríkisstarfsmanna. Þar með verður heilbrigðisstarfsfólki sem vinnur klínísk störf gert kleift að starfa til 75 ára aldurs hjá opinberum heilbrigðisstofnunum á grundvelli ráðningarsamnings. Með lögunum er bætt inn í lög um heilbrigðisstarfsmenn nýju ákvæði…Lesa meira

true

Rampa upp Stykkishólm

Verkefnið Römpum upp Ísland er í fullum gangi og er þessa dagana í Stykkishólmi. Verkstjóri rampanna kom í heimsókn í Stykkishólm fyrr í vor til að kanna þörf á römpum hjá einkafyrirtækjum í bænum. Í framhaldinu voru gerðar teikningar af þeim römpum sem fyrirhugaðir voru á svæðinu og er nú unnið að því að setja…Lesa meira

true

Vinna við útrásarlögn skólps úti fyrir Kalmansvík

Í þessari viku hefja Veitur vinnu við viðhald á útrásarlögn úti fyrir Kalmansvík á Akranesi og mun vinnan standa yfir á tímabilinu 12. – 30. júní. Lögnin dælir hreinsuðu skólpi út frá hreinsistöðinni í Kalmansvík og út í sjó. Hún hefur orðið fyrir ágangi sjávar og því nauðsynlegt að styrkja hana. Vinnan fer fram spölkorn…Lesa meira

true

Sundfólk frá Akranesi hlutskarpt á Sumarmóti

Sumarmót SSÍ fór fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina, þar sem besta sundfólk Íslands mætti til keppni en mótið er fyrir stelpur 15 ára og eldri, og stráka 16 ára og eldri. Sundfélag Akraness var með 8 keppendur þessa helgina sem öll syntu vel en þrjú Akranesmet féllu, og tók SA til sín þrenn…Lesa meira

true

Indó í útrás og fer á flakk um landið – verða á Akranesi á föstudaginn

„Indó verður fyrsti færanlegi sparisjóðurinn í sögu Íslands þegar hann lokar skrifstofu sinni í Reykjavík í nokkra daga og heldur út á land. Markmiðið er að eiga opið samtal við viðskiptavini, og alla sem hafa áhuga á að kynnast Indó, og efla tengsl við landsbyggðina,“ segir í tilkynningu frá Indó. Fyrstu færanlegu höfuðstöðvarnar verða á…Lesa meira

true

Niðurrif að hefjast á húsi KFUM & K

Í næstu viku stendur til að byrja að rífa innan úr KFUM & K húsinu sem stendur við Garðabraut 1 á Akranesi og í kjölfarið er ætlunin að rífa húsið. Í síðustu viku var komið með skúra á svæðið sem koma til með að vera skrifstofur og einnig matar- og kaffiaðstaða fyrir iðnaðarmenn Byggingarfélagsins Bestlu…Lesa meira

true

Fjórði tapleikur Reynis í röð

Reynir Hellissandi tók á móti toppliði RB í A riðli 5. deildar karla á föstudagskvöldið og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Gestirnir úr Reykjanesbæ skoruðu tvö mörk í uppbótatíma fyrri hálfleiks og þriðja markið á þeirri fyrstu í seinni hálfleik, staðan 0-3 fyrir RB og staðan ekki góð fyrir Reyni. En þeir neituðu að gefast upp…Lesa meira

true

Fyrsta tap ÍA kom á móti Völsungi

Völsungur og ÍA mættust í 2. deild kvenna í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Húsavík. Völsungskonur komust yfir strax á sjöttu mínútu þegar þær fengu ódýra aukaspyrnu sem Krista Eik Harðardóttir tók og skoraði hún beint úr spyrnunni. Þrátt fyrir að ÍA væri mun meira með boltann og hefði sótt mun meira í…Lesa meira