Einar Margeir Ágústsson, hér fyrir miðju, var stigahæsti sundmaður mótsins í unglingaflokki. Ljósm. SSÍ

Sundfólk frá Akranesi hlutskarpt á Sumarmóti

Sumarmót SSÍ fór fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina, þar sem besta sundfólk Íslands mætti til keppni en mótið er fyrir stelpur 15 ára og eldri, og stráka 16 ára og eldri. Sundfélag Akraness var með 8 keppendur þessa helgina sem öll syntu vel en þrjú Akranesmet féllu, og tók SA til sín þrenn gullverðlaun, fimm silfur og eitt brons  

Einar Margeir Ágústsson frá SA var stigahæsti sundmaður mótsins í unglingaflokki, með ein gullverðlaun fyrir 50m bringusund og þrenn silfurverðlaun (50m flugsund, 100m bringusund og 200m skriðsund). Hann bætti Akranesmetið í 200m skriðsundi í unglingaflokki, þegar hann synti á tímanum 1.59.67. Gamla metið átti Guðbjarni Sigþórsson (2.01.64) frá apríl á þessu ári.

Sundfólk frá Akranesi hlutskarpt á Sumarmóti - Skessuhorn