
Frá framkvæmdum við Garðabraut 1. Ljósm. vaks
Niðurrif að hefjast á húsi KFUM & K
Í næstu viku stendur til að byrja að rífa innan úr KFUM & K húsinu sem stendur við Garðabraut 1 á Akranesi og í kjölfarið er ætlunin að rífa húsið. Í síðustu viku var komið með skúra á svæðið sem koma til með að vera skrifstofur og einnig matar- og kaffiaðstaða fyrir iðnaðarmenn Byggingarfélagsins Bestlu sem hafa haft aðstöðu í KFUM & K húsinu undanfarin ár. Þá er verið að rífa niður girðinguna sem var sett til bráðabirgða utan um efnið sem var á staðnum fyrir og setja nýja girðingu í staðinn sem verður staðsett aðeins utar.