Fréttir

true

Bætt aðgengi að lífsbjargandi lyfi við ofskömmtun ópíóða

Lyf á nefúðaformi sem inniheldur naloxón getur reynst lífsbjargandi sem fyrstu viðbrögð við ofskömmtun ópíóíða. Breytt fyrirkomulag við afhendingu lyfsins hefur bætt til muna aðgengi að lyfinu um allt land, einstaklingum að kostnaðarlausu. Dæmi um lyf/efni sem innihalda ópíóíða eru heróín, metadon, fentanýl, oxýkódon, búprenorfín og morfín. Naloxón er lyfseðilsskylt og var verklagið lengst af…Lesa meira

true

Lið BA sigraði í Björgunarleikunum

Kvennalið Björgunarfélags Akraness (BA) bar sigur úr býtum á Björgunarleikum Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldnir voru á Akureyri laugardaginn 13. maí sl. Leikarnir eru haldnir annað hvert ár samhliða landsþingi Slysavarnafélagsins en fyrst var keppt árið 2001.  Þetta er í annað sinn sem lið frá BA sigrar á leikunum, fyrri sigurinn er frá árinu 2005. Þá…Lesa meira

true

Er sjómennskan í blóð borin og lærir nú skipstjórn

Benedikt Björn Sveinbjörnsson verður 22 ára í sumar en hann er alinn upp í Rifi og á Hellissandi en hefur búið í Ólafsvík undanfarin ár. Segja má að honum sé sjómennskan í blóð borin en fjölskylda hans hefur ætíð starfað við sjómennsku. Hann er nú í skipstjórnarnámi við Skipstjórnarskólann sem rekinn er af Tækniskólanum í…Lesa meira

true

Akranesleikarnir í sundi um næstu helgi

Met þátttaka er á Akranesleikana í sundi sem fara fram í Jaðarsbakkalaug um næstu helgi. 380 keppendur frá tólf félögum eru skráðir til leiks. „Fjörið hefst föstudaginn 2. júní klukkan 16:30 og stendur yfir alla helgina. Á laugardag og sunnudag verðir keppt frá klukkan 09.00. Starfrækt verður sjoppa í Hátíðarsal meðan á móti stendur og…Lesa meira

true

Sjómannadagsefni á vefnum

Sjómannablað Skessuhorns kemur út á morgun, miðvikudaginn 31. maí. Er blaðið að stærstum hluta helgað störfum sjómanna í tilefni þess að Sjómannadagurinn er sunnudaginn 4. júní. Rætt er við sjómenn víðsvegar um Vesturland, um störf þeirra og leik. Sú nýbreytni er að þessu sinni að nú birtist allt efni úr sjómannablaðinu í heild sinni á…Lesa meira

true

Skýrsla komin út um ímynd Vesturlands

Út er komin Ímyndarskýrsla Vesturlands 2023. Er hún unnin af starfsmönnum rannsóknaseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum, þeim Bjarka Þór Grönfeldt og Vífli Karlssyni. Tildrög þess að skýrslan var unnin eru þau að Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi fólu Háskólanum á Bifröst að framkvæma rannsókn sem hefði það að megin viðfangsefni að meta ímynd Vesturlands sem búsetuvalkosts…Lesa meira

true

Dirty burger and ribs mun opna í Borgarnesi

Veitingakeðjan Dirty burger and ribs mun koma til með að opna veitingastagð á Brúartorgi 6 í Borgarnesi þar sem Grillhúsið var síðast til húsa. Húsið var byggt árið 2012 og er í eigu Orkunnar sem hefur gert samning við fyrrnefnda veitingahúsakeðju. Þess má til gamans geta að byggingin var tilnefnd til erlendra hönnunarverðlauna, Mies van…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Karítas Óðinsdóttir

Tónlistin flæðir í fjölskyldunni  Karítas Óðinsdóttir frá Einarsnesi í Borgarfirði hefur getið sér gott orð í tónlistarsenunni á Íslandi en hún starfar sem plötusnúður og söngkona. Einnig hefur hún verið meðlimur stúlknarappsveitarinnar Reykjavíkurdætra síðan árið 2018 og keppti m.a. með sveitinni í Söngvakeppni Sjónvarpsins á síðasta ári þar sem litlu munaði að hópurinn keppti…Lesa meira

true

Leituðu að bilun í veitukerfinu

Á dögunum fengu Veitur ohf á Akranesi ábendingu frá fasteignaeiganda í bænum um að möguleiki væri á að rakaskemmdir í húsnæði viðkomandi mætti rekja til bilunar í veitukerfinu á Akranesi. Undanfarna daga hafa Veitur, í samvinnu við Akraneskaupstað og fasteignaeigandann, grafið nokkrar holur í bæjarlandi Akraness til að leita að mögulegri bilun. Enn hefur ekkert…Lesa meira

true

Tvær heimildamyndir úr Snæfellsbæ hrepptu verðlaun á Skjaldborg

Heimildamyndahátíðin Skjaldborg fór fram á Patreksfirði um síðustu helgi en í ár var það heimildamyndin Heimaleikurinn sem hreppti aðal verðlaun hátíðarinnar; verðlaunagripinn Einarinn. Heimaleikurinn er gamansöm íþróttaheimildarmynd um tilraun manns til að uppfylla draum föður síns. Draumurinn er að safna í lið heimamanna til að spila langþráðan vígsluleik á fótboltavelli sem faðirinn lét byggja á…Lesa meira