Skýrsla komin út um ímynd Vesturlands

Út er komin Ímyndarskýrsla Vesturlands 2023. Er hún unnin af starfsmönnum rannsóknaseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum, þeim Bjarka Þór Grönfeldt og Vífli Karlssyni. Tildrög þess að skýrslan var unnin eru þau að Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi fólu Háskólanum á Bifröst að framkvæma rannsókn sem hefði það að megin viðfangsefni að meta ímynd Vesturlands sem búsetuvalkosts og valkosts í ferðamennsku. Send var út spurningakönnun á netinu og byggir skýrslan á hátt í 1300 svörum. Farið er í saumana á því hver ímynd Vesturlands sé í augum annarra íbúa á landinu, gagnvart búsetu, ferðaþjónustu og samfélagi.

Skýrsla komin út um ímynd Vesturlands - Skessuhorn