Forsíðumynd Sjómannablaðs Skessuhorns. Alfons Finnsson og Rúnar Reynisson eru hér um borð í Jökli SH sem Hrói hf. gerði út á troll frá Ólafsvík. Myndin er ekki alveg ný, tekin árið 1985, á Olympus-OM10 myndavél, fyrstu alvöru myndavélina sem Alfons eignaðist. Í sjómannablaði Skessuhorn er m.a. rætt við sjóarann og ljósmyndarann Alfons og birtur fjöldi mynda sem hann hefur tekið í áranna rás á og við sjóinn í Ólafsvík.

Sjómannadagsefni á vefnum

Sjómannablað Skessuhorns kemur út á morgun, miðvikudaginn 31. maí. Er blaðið að stærstum hluta helgað störfum sjómanna í tilefni þess að Sjómannadagurinn er sunnudaginn 4. júní. Rætt er við sjómenn víðsvegar um Vesturland, um störf þeirra og leik.

Sú nýbreytni er að þessu sinni að nú birtist allt efni úr sjómannablaðinu í heild sinni á vefnum. Bendum við á hér er hægt að gerast vefáskrifandi að Skessuhorni, en sú áskrift veitir aðgang að öllu læstu efni á vefnum skessuhorn.is.

Sjómannadagsefni á vefnum - Skessuhorn