
Sigurliðið. Frá vinstri: Halla Jónsdóttir, Silvia Llorens, Sigrún Guðný Pétursdóttir, Birna Björnsdóttir, Belinda Eir Engilbertsdóttir og Freyja Kristjana Bjarkadóttir.
Lið BA sigraði í Björgunarleikunum
Kvennalið Björgunarfélags Akraness (BA) bar sigur úr býtum á Björgunarleikum Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldnir voru á Akureyri laugardaginn 13. maí sl. Leikarnir eru haldnir annað hvert ár samhliða landsþingi Slysavarnafélagsins en fyrst var keppt árið 2001.