Fréttir

true

Fyrsti sigur Kára kominn í hús

Elliði og Kári mættust í 3. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Würth vellinum í Árbænum. Fyrir leik voru Káramenn án sigurs í deildinni en lið Elliða með tvo sigra og eitt tap. Það var ljóst frá fyrstu mínútu að gestirnir úr Kára ætluðu sér að fá eitthvað út úr…Lesa meira

true

Vilja láta endurskoða starfsleyfi stóriðju og stöðva hvalveiðar

Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð var haldinn 24. maí síðastliðinn. Fundurinn sendir frá sér tvær ályktanir, annars vegar um mengun frá stóriðju og hins vegar um hvalveiðar. „Aðalfundur… [] skorar á ríkisstjórn Íslands að láta fara fram endurskoðun á starfsleyfum stóriðjufyrirtækjanna á Grundartanga, með það að markmiði að þau dragi nú þegar úr losun mengandi efna…Lesa meira

true

Auglýsingafrestur í dag vegna Sjómannablaðs Skessuhorns

Sjómannablað Skessuhorns kemur út í næstu viku, miðvikudaginn 31. maí. Það verður að stærstum hluta helgað störfum sjómanna í tilefni þess að Sjómannadagurinn er sunnudaginn 4. júní. Rætt verður við sjómenn víðsvegar um Vesturland um störf þeirra og leik. Þeim sem vilja koma auglýsingum á framfæri í þetta blað er bent á að frestur til…Lesa meira

true

Tilkynningar um heimilisofbeldi til lögreglu – breyting á lögum um heilbrigðisstarfsmenn

Samþykkt hefur verið á Alþingi frumvarp Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra til breytingar á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Með lagabreytingunni eru skýrðar heimildir heilbrigðisstarfsfólks til að tilkynna lögreglu um heimilisofbeldi í samráði við þolanda sem leitar á heilbrigðisstofnun. Tilgreint er hvaða upplýsingum er heimilt að miðla til lögreglu þannig að henni sé kleift að gera viðeigandi ráðstafanir…Lesa meira

true

Tónleikar tveggja sinfóníuhljómsveita í Reykholtskirkju

Nú um hvítasunnuhelgina kemur til Íslands sinfóníuhljómsveit frá Þýskalandi; Strohgäu Sinfonieorchester, og sækir heim Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Báðar sveitirnar eru skipaðar áhugatónlistarfólki og hafa starfað um áratuga skeið. Þriðjudaginn 30. maí og föstudaginn 2. júní leiða hljómsveitirnar saman hesta sína og flytja tónlistina úr gamanóperunni Leðurblökunni eftir valsakónginn Jóhann Strauss. Fyrri tónleikarnir verða haldnir í Langholtskirkju…Lesa meira

true

Nemendaferð Heiðarskóla til Brighton

Þessa dagana eru nemendur 9. og 10. bekkjar Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit í vorferðalagi í Brighton á Englandi. Nemendur höfðu lagt mikið á sig við að safna fyrir ferðinni með dyggum stuðningi forráðamanna, styrkjum frá fyrirtækjum og Hvalfjarðarsveit. Fram kemur á heimasíðu skólans að hópurinn hafi lent í Lundúnum á þriðjudaginn og farið síðan með rútu…Lesa meira

true

Borgarbyggð vonast eftir að MAST bregðist hratt og örugglega við

Í tilkynningu sem Skessuhorni var að berast frá Borgarbyggð kemur fram að sveitarfélaginu barst ábending undir hádegi í dag um að koma ætti með sauðfé á skrifstofu sveitarfélagsins vegna mála er varðar velferð dýra sem ítrekað hafa verið tilkynnt til MAST. „Út frá dýravelferðarsjónarmiðum var það metið sem svo að farsælasta lausnin væri að hafa…Lesa meira

true

Nágranni kveðst búinn að fá nóg af ágangi villifjár

Í dag sótti starfsmaður áhaldahúss Borgarbyggðar tvær kindur sem Vilhjálmur Diðriksson bóndi á Helgavatni hafði handsamað, fóðrað og haft í haldi. Vilhjálmur kveðst hafa tilsagt kindurnar til eigenda þeirra, lögreglu og sveitarfélagsins, en þær eru frá Höfða í Þverárhlíð. Í ljósi þess að kindurnar höfðu ekki verið sóttar eftir tiltekinn lögbundinn frest hugðist Vilhjálmur í…Lesa meira

true

Í hópi tíu fegurstu kirkna í heimi

Tímaritið Architectural Digest birti í gær lista yfir tíu fegurstu kirkjur heims og er Stykkishólmskirkja þar á meðal. Fréttavefurinn mbl.is greindi fyrst frá. Þær kirkjur sem komu til álita við valið þurftu að veita huggun, friðsæld og vera öruggur staður til tilbeiðslu. Á lista tímaritsins eru auk þess Kapella heilags Georgs í Eþíópíu, Panagía Paraportianíkirkja…Lesa meira