Fréttir

true

Handverksostar skapa sérstöðu

Heimsókn í MS í Búðardal: Mjólkursamlagið í Búðardal hefur í tæp 60 ár verið burðarás í atvinnulífinu þar í bæ. Það hefur frá upphafi verið rekið undir merkjum Mjólkursamsölunnar (MS) og er eitt af fimm samlögum sem MS starfrækir á landinu. Samlagið í Búðardal hefur þá sérstöðu meðal samlaga MS að það er sérhæft fyrir…Lesa meira

true

Tveir aðstoðarskólastjórar í Grundaskóla

Kristrún Dögg Marteinsdóttir og Margrét Ákadóttir hafa verið ráðnar í störf aðstoðarskólastjóra í Grundaskóla á Akranesi frá og með 1. ágúst 2023. Alls bárust átta umsóknir um starfið. Fram kemur á heimasíðu Grundaskóla að samhliða afgreiðslu á þessari ráðningu hafi verið ákveðið að ráðast í skipulagsbreytingar á stjórnskipulagi skólans og hafa tvo aðstoðarskólastjóra líkt og…Lesa meira

true

Hefja varmaskipti í grunnskóla- og íþróttamannvirkjum

Um miðjan maí mun fyrirtækið Borlausnir ehf. hefja borun á varmadæluholum í Grundarfjarðarbæ. Grunnskóli, tónlistarskóli, sundlaug og íþróttahús bæjarins eru kynt með olíu og hefur nú um tíma verið unnið að undirbúningi þess að skipta út olíukatli og setja upp varmadælubúnað sem nota á sem nýjan orkugjafa mannvirkjanna. Fyrr á árinu var leitað tilboða í…Lesa meira

true

Á sjötta hundrað fengið útgefin strandveiðileyfi

Í gær, á upphafsdegi strandveiða, hafði Fiskistofa afgreitt 517 leyfi til veiðanna, en 18 leyfi til viðbótar voru óútgefin og þörfnuðust viðbótargagna með umsókn. Umsóknir um strandveiðileyfi fyrir vertíðina í sumar eru nú í fyrsta skipti afgreidd í gegnum stafrænt umsóknakerfi Ísland.is. Með þessu er þjónusta Fiskistofu bætt til muna þar sem kerfið þykir notendavænt…Lesa meira

true

Deildin verður mjög jöfn og spennandi

Skagamenn léku í fyrra fjórða árið í röð í efstu deild karla í knattspyrnu sem nefndist Besta deildin. ÍA lauk leik í næst neðsta sæti deildarinnar og féll í Lengjudeildina ásamt Leikni Reykjavík. Jón Þór Hauksson er þjálfari Skagamanna eins og í fyrra og blaðamaður kom við hjá honum á skrifstofunni í síðustu viku til…Lesa meira

true

Guðjón Ingi sigurvegari í Bakgarðshlaupinu

Skagamaðurinn Guðjón Ingi Sigurðsson var sigurvegari í hlaupakeppninni Bakgarður 101 sem fram fór í Öskjuhlíð í Reykjavík um helgina. Bakgarður 101 er systurkeppni Bakgarðs Náttúruhlaupa sem fer fram í Heiðmörk í september ár hvert. 150 manns hófu keppni í hlaupinu þar til einn stóð eftir. Guðjón hljóp alls 207,7 km en hann hljóp 31 hring,…Lesa meira

true

Eigendaskipti á Söluskála Ó.K.

Nýir eigendur hafa tekið við rekstri Söluskála Ó.K. í Ólafsvík. Það eru hjónin Júníana Björg Óttarsdóttir og Jóhann Pétursson sem taka við rekstrinum af Ólínu Björk Kristinsdóttur og Þórði Stefánssyni. Ólína og Þórður hafa rekið Söluskála Ó.K. í rúm 20 ár en leituðu þess síðastliðið haust að fá nýja aðila til að taka við keflinu.…Lesa meira

true

Leikskólapláss leiddi lækni til Ólafsvíkur

Aaron Palomares tók við stöðu læknis á heilsugæslustöð HVE í Ólafsvík um síðustu áramót. Erfiðlega gekk að manna læknastöður í Snæfellsbæ síðastliðið haust og kom það fyrir að læknalaust var með öllu í sveitarfélaginu af og til. Hefur Aaron nokkrum sinnum áður farið vestur í Ólafsvík til að vinna á heilsugæslunni þar, en þá bara…Lesa meira

true

Barnamenningarhátíð framundan

Með Skessuhorni í dag fylgir átta síðna sérblað í tilefni af Barnamenningarhátíðinni Ok í Borgarfirði og nágrenni. Hátíðin er styrkt af SSV en slík hátíð flakkar á milli héraða á Vesturlandi. Hátíðin nú hefst mánudaginn 8. maí og lýkur 13. maí með lokahófi í Hjálmakletti. Fjölbreytt dagskrá verður í boði þessa daga; sýningar úti og…Lesa meira

true

Keypti sauðfjárbú sautján ára og er yngsti bóndi landsins

Kolbein Óskar Bjarnason má vafalaust titla yngsta bónda landsins. Hann er fæddur árið 2005 og festi nýverið kaup á sauðfjárbúi að Kötlulandi í Reykhólasveit, en hann verður 18 ára í júlí næstkomandi. Kolbeinn er alinn upp á 550 kinda búi en hefur þó áhuga á flestum búskap. ,,Ég er rosalega spenntur fyrir þessu og kann…Lesa meira