Aaron Palomares og Una Sóley Pálsdóttir með börnin sín tvö.

Leikskólapláss leiddi lækni til Ólafsvíkur

Aaron Palomares tók við stöðu læknis á heilsugæslustöð HVE í Ólafsvík um síðustu áramót. Erfiðlega gekk að manna læknastöður í Snæfellsbæ síðastliðið haust og kom það fyrir að læknalaust var með öllu í sveitarfélaginu af og til. Hefur Aaron nokkrum sinnum áður farið vestur í Ólafsvík til að vinna á heilsugæslunni þar, en þá bara í viku eða tvær í senn. Nú er hann hins vegar búinn að starfa þar samfleytt í fjóra mánuði, en hann flutti til Ólafsvíkur í lok síðasta árs með konu sinni og tveimur börnum. Hann segir að þeim líki vel í Snæfellsbæ en stór ástæða þess að þau ákváðu að flytja þangað var leikskólapláss fyrir eins árs son þeirra.

Leikskólapláss leiddi lækni til Ólafsvíkur - Skessuhorn