Fréttir

true

Skagamenn komnir áfram í Mjólkurbikarnum eftir sigur á Sindra

Sindri og ÍA mættust í gær í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla og fór leikurinn fram á Höfn í Hornafirði. Jón Þór Hauksson þjálfari Skagamanna gerði fimm breytingar á liði ÍA frá síðasta leik og þar fékk meðal annars markvörðurinn Árni Marinó Einarsson sitt fyrsta tækifæri í sumar. Sindri sem leikur í þriðju deild komst óvænt…Lesa meira

true

Hráefnið sótt í brotajárnsgám

Í gamla fjósinu á Blikastöðum í Mosfellssveit hafa félagsmenn í Ferguson félaginu aðstöðu til viðgerða og geymslu á gömlum dráttarvélum. Þorfinnur Júlíusson frá Laugabæ í Bæjarsveit hefur fjósið á leigu og endurleigir síðan pláss út til þeirra sem vilja gera upp gamlar vélar. Nokkrum sinnum á ári blæs félagið til mannfagnaðar. Síðastliðinn laugardag var komið…Lesa meira

true

Seinkun á dreifingu Skessuhorns á Snæfellsnesi

Skessuhornsblöðin til áskrifenda á Snæfellsnesi urðu því miður viðskila við dreifingarmann þeirra í gærkvöldi og af þeim sökum seinkar útburði. Blöðin eru hins vegar blessunarlega komin í leitirnar og á leið vestur síðdegis í dag. Þau verða borin út strax og hægt er. Beðist er velvirðingar á þessu.Lesa meira

true

Háskólalestin verður á Snæfellsnesi í vikulokin

Ólafsvík og Grundarfjörður eru síðustu áfangastaðir Háskólalestar Háskóla Íslands þetta vorið en þar stoppar lestin dagana 27. og 28. maí. Í boði verða bæði fjölbreytt námskeið fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla á staðnum og vísindaveisla í Fjölbrautaskóla Snæfellinga fyrir alla áhugasama. Megináherslan í starfi Háskólalestarinnar er á að kynna vísindi á lifandi og fjölbreyttan…Lesa meira

true

Hlaðvarpinn í Saurbæ er alþjóðlegur tengslapottur

Hún er frá Stuðlum í Mývatnssveit og hann frá Dal í Grýtubakkahreppi, en nú hafa þau sest að í Hvalfirðinum þar sem fjörðurinn blasir við út um gluggann. Þau áttu gullbrúðkaupsafmæli fyrir nokkru og ætla að fagna því í sumar. Margréti Bóasdóttur og Kristján Val Ingólfsson búa nú á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. „Við fluttum hingað…Lesa meira

true

Borgfirðingar buðu flóttafólki upp á tónleika og kaffi

Síðastliðinn laugardag buðu sjálfboðaliðar úr Borgarfirði upp á tónleika og í kaffiboð fyrir nýja nágranna frá Úkraínu. Viðburðurinn fór fram í hátíðarsal Háskólans á Bifröst en flóttafólkið hefur verið að koma sér fyrir á staðnum undanfarnar vikur. Markmið með viðburðinum var að fólk sem býr í nærsveitum, og aðrir sem vildu, gætu hitt flóttafólkið frá…Lesa meira

true

Erlendir áhrifavaldar fengu að kynnast fiskmenningu á Snæfellsnesi

Í síðustu viku voru hér á landi staddir breskir og franskir áhrifavaldar og fréttamenn. Í hópnum voru 19 og var ferðin skipulögð af Íslandsstofu sem bauð í fjögurra daga ferð um Snæfellsnesið þar sem íslenski fiskurinn var kynntur með ýmsum hætti. Verkefnið er hluti af markaðsherferð sem Íslandsstofa hefur staðið fyrir síðastliðin ár. Herferðin nefnist…Lesa meira

true

Mögulegt samstarf Brákarhlíðar og MB um nýbyggingu í Borgarnesi

Hjúkrunar- og dvalarheimilið Brákarhlíð og Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi hafa sameinast um að kanna möguleika á því að byggja fjölbýlishús í bænum fyrir eldra fólk og nemendur. Undirbúningur er kominn talsvert á veg, deiliskipulag er í auglýsingu og fyrirhugað er að hefja framkvæmdir á næsta ári ef áformin ganga eftir. Reikna er með að byggingartíminn…Lesa meira

true

Koma strandaglópum til aðstoðar

Björgunarsveitir fengu nú fyrir um hálftíma beiðni um aðstoð. Tveir menn eru strandaglópar í Hvalseyjum, vestur af Mýrum. Bát þeirra rak frá eyjunni og komast þeir því hvorki lönd né strönd. Ekkert amar að mönnunum sem eru að sögn vel búnir.Lesa meira

true

Silfurverðlaunahafi á HM í bekkpressu

Alexandrea Rán Guðnýjardóttir frá Borgarnesi varð um helgina silfurverðlaunahafi á heimsmeistaramóti unglinga í bekkpressu, en mótið fer nú fram í Kasakstan. Alexandrea lyfti þar tvöfaldri líkamsþyngd sinni en hún keppir í flokki -63 kíló og lyfti 125 kílóum og bætti þar sinn persónulega árangur um tvö og hálft kíló. Alexandrea á síðan eftir að keppa…Lesa meira