
Í morgun undirrituðu eigendur Þróunarfélags Grundartanga og fyrirtækin sem starfa á Grundartangasvæðinu viljayfirlýsingu um uppbyggingu græns iðngarðs með hringrásarhugsun á Grundartanga og fór undirritunin fram í sal mötuneytis Norðuráls á Grundartanga. Í uppbyggingunni felst að mótuð verði fyrirmyndar sjálfbærniumgjörð fyrir svæðið og unnið að uppbyggingu hringrásarhagkerfis með bættri fjölnýtingu auðlinda og innviða. Grundartangi sem grænn…Lesa meira








