Fréttir

true

Undirbjuggu leit

Björgunarsveitir um vestanvert landið voru á fyrsta tímanum í nótt kallaðar út til leitar að ferðamanni sem orðið hafði viðskila við hóp á svæðinu milli Búða og Hraunsmúla. Beiðni til sveitanna var síðan afturkölluð um klukkustund síðar þegar maðurinn skilaði sér heill á húfi.Lesa meira

true

Viðgerð á þaki Vinaminnis

Í byrjun vikunnar hófust framkvæmdir við þak Safnaðarheimilisins Vinaminnis á Akranesi. Þar er byrjað að taka af efsta hluta þaksins á húsinu og verður síðan settur þakdúkur í stað járnsins sem fyrir er. Það er fyrirtækið Þakdúklagnir ehf sem sér um verkið.Lesa meira

true

Með kannabis í bílnum

Á föstudaginn í liðinni viku var ökumaður tekinn fyrir of hraðan akstur við Fiskilæk í Melasveit en hann mældist á 131 kílómetra hraða. Þegar lögreglumenn fóru að ræða við ökumanninn fundu þeir kannabislykt í bílnum en ökumaðurinn kannaðist ekki við neitt slíkt. Hann var af erlendu bergi brotinn og ekki með lögheimili á Íslandi. Bíllinn…Lesa meira

true

Óskað eftir tillögum

Árlega útnefnir Akraneskaupstaður bæjarlistamann til eins árs í senn. Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar óskar eftir tillögum frá almenningi um bæjarlistamann Akraness árið 2022. Menningar- og safnanefnd mun fara yfir allar tillögur sem berast og verða niðurstöður kynntar á Þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Fólk er hvatt til að kynna sér vel þær reglur sem í gildi eru…Lesa meira

true

Tékkneskir nemendur í heimsókn

Fjölbrautaskóli Snæfellinga tekur þátt í samstarfsverkefninu Food for thought með tékkneskum skóla. Verkefnið er til eins árs og fjallar um mat og matvælaframleiðslu í sínu nánasta umhverfi. Miðvikudaginn 25. apríl kom svo hópur nemenda og kennara frá Tékklandi og dvaldi í Grundarfirði í rúma viku. Gistu gestirnir ýmist hjá öðrum nemendum Fjölbrautaskóla Snæfellinga eða á…Lesa meira

true

Uppaldir Skallagrímsmenn skrifa undir

Körfuknattleiksdeild Skallagríms í Borgarnesi er strax farin að huga að komandi tímabili. Í hádeginu í dag skrifuðu sex uppaldir leikmenn liðsins undir nýja samninga. Þetta eru þeir Almar Örn Björnsson, Arnór Mikael Arason, Bergþór Ægir Ríkharðsson,Bjartmar Áki Sigvaldason, Bjartur Daði Einarsson og Kristján Sigurbjörn Sveinsson.Lesa meira

true

Faxatorg lagt nýju malbiki

Umferð um Faxatorg á Akranesi var stöðvuð að nýju síðastliðinn mánudag meðan gengið er frá yfirboðslögn og frágangi við torgið. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki seint í næstu viku. Íbúar, en kannski ekki síst gestkomandi í bænum, hafa orðið áþreifanlega varir við hversu mikill miðpunktur torgið er í æðarkerfi gatnakerfisins í bænum. Vel…Lesa meira

true

„Aðaláhugamálið er alltaf tónlistin“

Rætt við Benedikt Kristjánsson söngvara sem nú býr á Akranesi Benedikt Kristjánsson býr á Akranesi þótt starf hans kalli hann víða um heim. Hann flutti ásamt fjölskyldu sinni þangað frá Berlín fyrir um það bil ári. Blaðamaður Skessuhorns sótti hann heim til að fræðast um sönginn og tónlistina og hvað það var sem kallaði á…Lesa meira

true

Álfasala SÁÁ að hefjast

Fólk úr Skallagrími í Borgarnesi hefur tekið að sér að selja Töfra-Álfinn fyrir SÁÁ næstu daga. „Sölufólk Skallagríms verður á ferð á fjölförnum stöðum í Borgarnesi og annars staðar á Vesturlandi fram á næstu helgi, ekki síst í verslunum og á bensínstöðvum,“ segir í tilkynningu. Þetta er í 34. skipti sem SÁÁ stendur að Álfasölunni,…Lesa meira

true

Skil á greinum í næstu viku

Nú styttist óðum í kosningar til sveitarstjórna. Þeim fylgja talsverð skrif frambjóðenda og annarra sem koma vilja skilaboðum til þeirra. Ritstjórn Skessuhorn beinir þeirri frómu ósk til frambjóðenda að skila tímanlega inn aðsendum greinum fyrir næsta tölublað. Þær þurfa að vera komnar á póstfang ritstjóra (skessuhorn@skessuhorn.is) eigi síðar en á hádegi mánudaginn 9. maí næstkomandi.…Lesa meira