{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Umferð um Faxatorg á Akranesi var stöðvuð að nýju síðastliðinn mánudag meðan gengið er frá yfirboðslögn og frágangi við torgið. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki seint í næstu viku. Íbúar, en kannski ekki síst gestkomandi í bænum, hafa orðið áþreifanlega varir við hversu mikill miðpunktur torgið er í æðarkerfi gatnakerfisins í bænum. Vel má finna hentugar hjáleiðir, en betra að vera kunnugur staðháttum. Nú er verið að malbika akbraut torgsins, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"53158,53159\"]",
"innerBlocks": []
}