
Hópurinn fyrir utan veitingahúsið Bjargarstein í gær þar sem allir snæddu saman síðasta kvöldið í Grundarfirði. Þarna er tékkneski hópurinn með íslensku nemendunum, kennurunum og fjölskyldunum sem buðu upp á gistingu fyrir þau. Ljósm. sá
Tékkneskir nemendur í heimsókn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fjölbrautaskóli Snæfellinga tekur þátt í samstarfsverkefninu Food for thought með tékkneskum skóla. Verkefnið er til eins árs og fjallar um mat og matvælaframleiðslu í sínu nánasta umhverfi. Miðvikudaginn 25. apríl kom svo hópur nemenda og kennara frá Tékklandi og dvaldi í Grundarfirði í rúma viku. Gistu gestirnir ýmist hjá öðrum nemendum Fjölbrautaskóla Snæfellinga eða á gistiheimili. Farið var í ferðir um Snæfellsnes þar sem bæði tékkneskir og íslenskir nemendur unnu saman ýmis verkefni, bökuðu kleinur og fóru í gönguferðir svo fátt eitt sé nefnt. Farið var í heimsókn að Bjarnarhöfn þar sem hópurinn fékk að gæða sér á dýrindis hákarli. Einnig var farið í gróðurhúsin að Lágafelli, í hvalaskoðun, heimsókn í frystihús G.Run og Soffaníasar Cecilssonar og í siglingu með Sæferðum þar sem hægt var að smakka glænýtt hráefni.\r\n\r\nStefnt er að því að tólf nemendur og þrír kennarar frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga fari svo í svipaða ferð til Tékklands í haust þar sem þeir munu dvelja í ellefu daga.",
"innerBlocks": []
}