Fréttir

true

Fermingarbörn safna fyrir vatnsbrunni með dansi

Fermingarbörn í Borgarbyggð ætla að dansa í sólarhring frá föstudegi til laugardags og um leið að safna fyrir vatnsbrunni í Eþíópíu. „Vatnssöfnun fermingarbarna er eitt stærsta verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Okkar fermingarbörn hér í sveitinni búa ekki við að geta gengið á milli húsa og safnað pening og ætla þau að leysa það með sólarhrings dansmaraþoni…Lesa meira

true

Hátónsbarkinn fer fram í kvöld í Tónbergi

Í kvöld, fimmtudaginn 10. mars, fer hin árlega Hátónsbarkakeppni fram í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Í tilkynningu frá Brekkubæjarskóla segir að loksins fái tónelskir unglingar aftur tækifæri til þess að láta ljós sitt skína og munu þeir að sjálfsögðu ekki láta sitt eftir liggja í kvöld. Tólf söngvarar úr báðum grunnskólum Akraness; Brekkubæjarskóla og…Lesa meira

true

Vetrardagar á Akranesi 17. til 20. mars

Vetrardagar verða haldnir á Akranesi dagana 17. til 20. mars en þeir voru haldnir fyrst árið 2016 og hafa undanfarin ár verið undir heitinu Írskir vetrardagar. Hátíðin var síðast haldin árið 2020 en var frestað í fyrra vegna faraldursins. Sigrún Ágústa Helgudóttir hjá Akraneskaupstað segir að markmið Vetrardaga séu að stofnanir Akraneskaupstaðar, fyrirtæki og bæjarbúar…Lesa meira

true

Tríóið Sírajón heldur í kvöld tónleika í Vinaminni

Tríóið Sírajón kemur fram á tónleikum Listafélagsins Kalmans í kvöld, fimmtudag klukkan 20, í Vinaminni á Akranesi. Tríóið skipa þau Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari, Einar Jóhannesson klarínettuleikari og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanóleikari. Sviðstónlist úr leikhúsinu rammar inn efnisskrá Tríós Sírajóns með mörgum stuttum og hnyttnum þáttum í verkum Poulencs og Hjálmars H. Ragnarssonar. Þar á milli…Lesa meira

true

Eitt erfiðasta vatnsárið í sögu Landsvirkjunar

Staðan í vatnsbúskap Landsvirkjunar er með þyngsta móti og staða miðlunarlóna enn lægri en spáð hafði verið í janúarlok. „Áfram verður allt gert til að tryggja afhendingu á forgangsorku. Ljóst er að miðað við stöðuna nú munu skerðingar standa út aprílmánuð, en jafnframt hefur Landsvirkjun leitað eftir endurkaupum á raforku hjá stórnotendum og virkjað slík…Lesa meira

true

Færeyingar landa loðnu á Akranesi

Snemma í morgun kom færeyska skipið Götunes FD-950 inn til loðnulöndunar á Akranesi. Götunesið var tekið inn á undan Jónu Eðvalds SF sem kom í gærkvöldi. Þannig er nú löndunarbið í höfninni.Lesa meira

true

Grundaskóli setur upp söngleik

Grundaskóli fagnar hækkandi sól, birtu og yl með því að ráðast í hvert stórverkefnið á fætur öðru. Nú er stefnt á að setja aftur upp söngleikinn Hunangsflugur og villiketti en söngleikurinn var frumsýndur skólaárið 2005 til 2006. Þessi uppsetning er lokaverkefni 10. bekkjar og kveðja til skólasamfélagsins í Grundaskóla. Þetta kemur fram á facebook síðu…Lesa meira

true

Skattframtalsskil standa nú yfir

Nú stendur yfir það tímabil ársins þegar almenningur á að skila inn skattframtölum sínum. Frestur til þess er til mánudagsins 14. mars. Netframtal einstaklinga 2022 er að finna á þjónustuvefnum skattur.is en þar má m.a. finna einfaldar framtalsleiðbeiningar á fimm tungumálum; íslensku, ensku, spænsku, pólsku og litháísku. Skatturinn hvetur framteljendur eindregið til að nota rafræn…Lesa meira

true

Fundur um áburðar- og jarðræktarmál á Snæfellsnesi

Svæðisgarðurinn Snæfellsnes ætlar í samstarfi við búnaðarfélögin þrjú á Snæfellsnesi að halda fund þriðjudaginn 15. mars í félagsheimilinu Breiðabliki. Þar verður fjallað um áburðar- og jarðræktarmál. Búnaðarfélögin þrjú á Snæfellsnesi eru í hópi eigenda Svæðisgarðsins og hafa frá upphafi átt fulltrúa í fulltrúaráði garðsins. „Bændur hér á svæðinu hafa tekið virkan þátt í margskonar verkefnum…Lesa meira

true

Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter á Akranesi um næstu helgi

Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter verður haldin í sjötta skiptið á Akranesi um helgina. Hátíðin hefst klukkan 18 á föstudaginn og verða allir viðburðir hennar haldnir á fyrstu hæðinni í Gamla Landsbankahúsinu á Suðurgötu 57 við Akratorg. Opnunarmynd hátíðarinnar er myndin Miracle Valley eftir Greg Sestero og mætir Sestero sem sérstakur gestur á hátíðina og svarar spurningum gesta…Lesa meira