
Sigurvegararnir í Hátónsbarkanum í fyrra. Frá vinstri: Hanna Bergrós, Rakel Helga Harðardóttir og Sylvía Þórðardóttir. Ljósm. af vefsíðu Brekkubæjarskóla.
Hátónsbarkinn fer fram í kvöld í Tónbergi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í kvöld, fimmtudaginn 10. mars, fer hin árlega Hátónsbarkakeppni fram í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Í tilkynningu frá Brekkubæjarskóla segir að loksins fái tónelskir unglingar aftur tækifæri til þess að láta ljós sitt skína og munu þeir að sjálfsögðu ekki láta sitt eftir liggja í kvöld. Tólf söngvarar úr báðum grunnskólum Akraness; Brekkubæjarskóla og Grundaskóla, keppast um hylli dómnefndar og mun einn þeirra hljóta titilinn Hátónsbarkinn 2022.\r\n\r\nÁtta nemendur Brekkubæjarskóla eru í hópi keppenda og þó nokkrir hljóðfæraleikarar úr þeirra röðum sem stíga á stokk. Hátónsbarki síðasta árs, hin bráðefnilega Hanna Bergrós Gunnarsdóttir úr Brekkubæjarskóla, mun einnig koma fram ásamt hljóðfæraleikurum. Það er því tilvalið að fjölmenna og styðja við bakið á þessum flottu unglingum sem eru að koma fram í fyrsta sinn eftir mjög langt hlé.\r\n\r\nHúsið opnar klukkan 20 og hefst keppnin klukkan 20.30. Frítt er inn á viðburðinn.",
"innerBlocks": []
}