Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter á Akranesi um næstu helgi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter verður haldin í sjötta skiptið á Akranesi um helgina. Hátíðin hefst klukkan 18 á föstudaginn og verða allir viðburðir hennar haldnir á fyrstu hæðinni í Gamla Landsbankahúsinu á Suðurgötu 57 við Akratorg.\r\n\r\nOpnunarmynd hátíðarinnar er myndin Miracle Valley eftir Greg Sestero og mætir Sestero sem sérstakur gestur á hátíðina og svarar spurningum gesta eftir sýningu myndarinnar. Myndin fjallar um ljósmyndara og kærustu hans sem fara í eyðimerkurferð í leit að afar sjaldgæfum fugli. Þar er sambandi þeirra fljótlega ógnað af illum öflum sem veldur því að þau þurfa að horfast í augu við djöfla úr fortíð, nútíð og framtíð. Greg Sestero er þekktastur fyrir leik sinn í bíómyndinni The Room frá árinu 2003 en sú mynd náði því í framhaldinu að verða valin ein besta versta mynd allra tíma. Óskarsverðlaunamyndin The Disaster Artist í leikstjórn James Franco var byggð af bók Greg með sama nafni sem fjallaði um gerð þeirrar myndar en bróðir James, Dave Franco, leikur Greg í myndinni.\r\n\r\nÁrsæll Rafn Erlingsson, einn af skipuleggjendum hátíðarinnar, segir að það stefni í góða hátíð. „Við erum að fá á hátíðina þekktan mann úr költ myndinni The Room sem margir hafa séð og er þetta fyrsta myndin í fullri lengd sem hann leikstýrir. Hann er búinn að gera nokkrar stuttmyndir og er mikill hryllingsmynda aðdáandi. Á laugardagskvöldinu verðum við svo með „Party Screening“ þar sem við verðum með kjötsúpu og íslenskt brennivín og sýnum eina gamla og góða hryllingsmynd til að loka hátíðinni með stæl.\"\r\n\r\nFjöldi af hryllingsstuttmyndum frá öllum heimshornum verða sýndar á hátíðinni eins og frá Bretlandi, Kanada, Frakklandi, Chile, Spáni, Taívan, Grikklandi, Brasilíu og Íslandi ásamt sérstökum viðburðum. Frítt er á allar sýningar og viðburði hátíðarinnar.",
  "innerBlocks": []
}
Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter á Akranesi um næstu helgi - Skessuhorn