Vetrardagar á Akranesi 17. til 20. mars

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vetrardagar verða haldnir á Akranesi dagana 17. til 20. mars en þeir voru haldnir fyrst árið 2016 og hafa undanfarin ár verið undir heitinu Írskir vetrardagar. Hátíðin var síðast haldin árið 2020 en var frestað í fyrra vegna faraldursins. Sigrún Ágústa Helgudóttir hjá Akraneskaupstað segir að markmið Vetrardaga séu að stofnanir Akraneskaupstaðar, fyrirtæki og bæjarbúar eru hvattir til sjálfsprottinnar þátttöku til að glæða bæjarbraginn lífi. Þá er þetta kjörið tækifæri fyrir menningartengda viðburði, aukinn opnunartíma í verslunum, opnar vinnustofur, „pop up“ matseðla á veitingahúsum eða aðrar uppákomur.\r\n\r\nSigrún Ágústa segir einnig að þau treysti algjörlega á bæjarbúa, stofnanir og fyrirtæki til að setja saman dagskrá. Síðan er það sem er alltaf á boðstólum alla jafnan eins og til dæmis Fjölskyldutímar á Smiðjuloftinu og Sögustund á bókasafninu þar sem verið er að benda á það sem er fyrir og til að vekja athygli á því. Þeir sem vilja enn taka þátt geta haft samband fyrir fimmtudaginn 10. mars.\r\n\r\nStaðfestir viðburðir á vetrardögunum í ár eru til dæmis tónleikar hjá Karlakórnum Svönum og rokktónleikar í Landsbankahúsinu. Kellingar ganga heim að Görðum verður laugardaginn 19. mars þar sem gengið verður um Garðasvæðið og kirkjugarðinn. Föstudaginn 18. mars verður Dansstúdíó Díönu og FIMÍA með opna æfingu fyrir börn þriggja til sjö ára. Þá verður Hallbera Jóhannesdóttir með upplestur úr bókum sínum á Byggðasafninu sunnudaginn 20. mars.",
  "innerBlocks": []
}
Vetrardagar á Akranesi 17. til 20. mars - Skessuhorn