Hópur sem stóð að uppfærslu á söngleiknum veturinn 2005-2006. Aðeins hefur tognað úr mannskapnum síðan þá. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Grundaskóli setur upp söngleik

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Grundaskóli fagnar hækkandi sól, birtu og yl með því að ráðast í hvert stórverkefnið á fætur öðru. Nú er stefnt á að setja aftur upp söngleikinn Hunangsflugur og villiketti en söngleikurinn var frumsýndur skólaárið 2005 til 2006. Þessi uppsetning er lokaverkefni 10. bekkjar og kveðja til skólasamfélagsins í Grundaskóla. Þetta kemur fram á facebook síðu Grundaskóla.\r\n\r\nNemendur í 10. bekk eru nú byrjaðir að æfa söng fyrir söngleikinn og geta allir sem vilja fengið hlutverk og tekið þátt í sýningunni. Leikstjórn sýningarinnar er í höndum höfundanna þriggja, þeirra Flosa Einarssonar, Einars Viðarssonar og Gunnars Sturlu Hervarssonar. Stefnt er á frumsýningu í byrjun apríl en sýnt verður í sal Grundaskóla.",
  "innerBlocks": []
}
Grundaskóli setur upp söngleik - Skessuhorn