Fréttir

true

Skattframtalsskil standa nú yfir

Nú stendur yfir það tímabil ársins þegar almenningur á að skila inn skattframtölum sínum. Frestur til þess er til mánudagsins 14. mars. Netframtal einstaklinga 2022 er að finna á þjónustuvefnum skattur.is en þar má m.a. finna einfaldar framtalsleiðbeiningar á fimm tungumálum; íslensku, ensku, spænsku, pólsku og litháísku. Skatturinn hvetur framteljendur eindregið til að nota rafræn…Lesa meira

true

Fundur um áburðar- og jarðræktarmál á Snæfellsnesi

Svæðisgarðurinn Snæfellsnes ætlar í samstarfi við búnaðarfélögin þrjú á Snæfellsnesi að halda fund þriðjudaginn 15. mars í félagsheimilinu Breiðabliki. Þar verður fjallað um áburðar- og jarðræktarmál. Búnaðarfélögin þrjú á Snæfellsnesi eru í hópi eigenda Svæðisgarðsins og hafa frá upphafi átt fulltrúa í fulltrúaráði garðsins. „Bændur hér á svæðinu hafa tekið virkan þátt í margskonar verkefnum…Lesa meira

true

Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter á Akranesi um næstu helgi

Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter verður haldin í sjötta skiptið á Akranesi um helgina. Hátíðin hefst klukkan 18 á föstudaginn og verða allir viðburðir hennar haldnir á fyrstu hæðinni í Gamla Landsbankahúsinu á Suðurgötu 57 við Akratorg. Opnunarmynd hátíðarinnar er myndin Miracle Valley eftir Greg Sestero og mætir Sestero sem sérstakur gestur á hátíðina og svarar spurningum gesta…Lesa meira

true

Framsókn með frjálsum kynnir framboðslista sinn á Akranesi

Framboðslisti Framsóknar með frjálsum var kynntur og samþykktur á flokksfundi í kvöld á Breiðinni. Oddviti listans verður Ragnar B. Sæmundsson bæjarfulltrúi og verslunarmaður. Listinn í heild er þannig: Nr. 1. Ragnar Baldvin Sæmundsson, verslunarmaður og bæjarfulltrúi Nr. 2 Liv Åse Skarstad, verkefnastjóri Nr. 3. Sædís Alexía Sigurmundsdóttir, verkefnastjóri Nr. 4. Magni Grétarsson, byggingatæknifræðingur Nr. 5.…Lesa meira

true

Stelpur Filma í Borgarbyggð

Stelpum og kynsegin ungmennum í Borgarbyggð bauðst í síðustu viku að sitja námskeiðið Stelpur Filma sem haldið var á vegum RIFF. Þar rækta þátttakendur innri sköpunargáfu sína og læra undirstöðuatriði í kvikmyndagerð. Námskeiðið hefur það markmið að valdefla ungar stúlkur og kynsegin ungmenni og leiðrétta þann kynjahalla sem hefur verið í kvikmyndagerð. Á námskeiðinu vinna…Lesa meira

true

Námskeið í boði fyrir eldri borgara á Akranesi

Símenntunarmiðstöð Vesturlands og Félag eldri borgara á Akranesi og í nágrenni munu á næstunni bjóða eldri borgurum á Akranesi (60 ára og eldri) upp á námskeið í tölvulæsi, næringu og slökun. Námskeiðin eru öll ókeypis fyrir þátttakendur. Námskeið í tölvulæsi er fyrst á dagskrá. Alls verður boðið upp á námskeið fyrir sex hópa í tölvulæsi,…Lesa meira

true

Farið yfir réttu handtökin í leikfimi eldri borgara

Í Grundarfirði stendur Félag eldri borgara, með liðsinni Rauða kross deildarinnar í Grundarfirði og Grundarfjarðarbæjar, fyrir heilsueflingu eldri íbúa bæjarins og þeirra sem búa við örorku. Hópurinn kemur saman fjórum sinnum í viku og stundar heilnæma hreyfingu; tvisvar sinnum í sal Líkamsræktarinnar og tvisvar sinnum í sal íþróttahússins. Umsjón með heilsueflingunni hafa þær Ágústa Einarsdóttir…Lesa meira

true

Rýmka reglur um íbúakosningar

Drög að frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum vegna íbúakosninga sveitarfélaga hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila inn umsögn er til og með 15. mars nk. Megin tilgangur frumvarpsins er annars vegar að einfalda og skýra reglur sem gilda um íbúakosningar…Lesa meira

true

Guðmundur Íslandsmeistari öldunga í keilu í þriðja sinn

Í gærkvöldi lauk keppni á Íslandsmóti öldunga í keilu 2022. Guðmundur Sigurðsson frá ÍA og Snæfríður Telma Jónsson frá ÍR stóðu uppi sem sigurvegarar eftir úrslitakeppni þriggja efstu. Þetta er í þriðja skiptið sem Guðmundur landar þessum titli og hefur þar með jafnað Rögnu Matthíasdóttur sem vann þetta mót einnig þrisvar sinnum á sínum glæsta…Lesa meira

true

Undir áhrifum í göngunum

Ökumaður var stöðvaður aðfararnótt laugardags þegar hann var að koma upp úr Hvalfjarðargöngunum og var látinn blása í áfengismæli lögreglu. Prófið reyndist jákvætt og er ökumaður grunaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Ökumaðurinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöðina. Mál hans fer í hefðbundið ferli.Lesa meira