Jóhanna Hallgerður Halldórsdóttir hnoðar dúkkuna.

Farið yfir réttu handtökin í leikfimi eldri borgara

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í Grundarfirði stendur Félag eldri borgara, með liðsinni Rauða kross deildarinnar í Grundarfirði og Grundarfjarðarbæjar, fyrir heilsueflingu eldri íbúa bæjarins og þeirra sem búa við örorku. Hópurinn kemur saman fjórum sinnum í viku og stundar heilnæma hreyfingu; tvisvar sinnum í sal Líkamsræktarinnar og tvisvar sinnum í sal íþróttahússins. Umsjón með heilsueflingunni hafa þær Ágústa Einarsdóttir og Rut Rúnarsdóttir, þjálfarar hjá Líkamsræktinni.\r\n\r\nMiðvikudaginn 2. mars síðastliðinn var hefðbundin dagskrá aðeins brotin upp í tilefni Öskudagsins. Þá mætti sjúkraflutningamaðurinn Tómas Freyr Kristjánsson og fór yfir fyrstu viðbrögð við meðvitundarleysi og notkun hjartastuðtækis í slíkum tilfellum. Iðkendur voru mjög áhugasamir um fræðsluna og fengu svo að æfa sig í hjartahnoði svona til að fá einhverja hreyfingu. Í lok tímans var svo skálað í engiferdrykk sem rann ljúflega niður.",
  "innerBlocks": []
}
Farið yfir réttu handtökin í leikfimi eldri borgara - Skessuhorn