Hópmynd af nemendum og leiðbeinendum á námskeiðinu með Ólafi Darra Ólafssyni leikara. Ljósm. arg.

Stelpur Filma í Borgarbyggð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Stelpum og kynsegin ungmennum í Borgarbyggð bauðst í síðustu viku að sitja námskeiðið Stelpur Filma sem haldið var á vegum RIFF. Þar rækta þátttakendur innri sköpunargáfu sína og læra undirstöðuatriði í kvikmyndagerð. Námskeiðið hefur það markmið að valdefla ungar stúlkur og kynsegin ungmenni og leiðrétta þann kynjahalla sem hefur verið í kvikmyndagerð. Á námskeiðinu vinna þátttakendur í litlum hópum við gerð stuttmyndar frá grunni, sem mega vera allt að fimm mínútur að lengd. Myndirnar verða svo sýndar RIFF hátíðinni í september.\r\n\r\nBlaðamaður Skessuhorns kíkti á krakkana á námskeiðinu síðastliðinn fimmtudag og fékk að fylgjast með því sem þeir voru að gera. Flest voru þá að byrja að klippa myndefnið og greinilegt að þeim þótti gaman að fara yfir það efni sem búið var að taka upp. Vinkonurnar Hanna Eiríksdóttir og Díana Björg Guðmundsdóttir settust niður með blaðamanni í smá stund og sögðu frá verkefninu. Myndin þeirra var drama um þrjár vinkonur þar sem ein var í neyslu en hinar tvær voru hrifnar af sama stráknum. „Þetta er alveg svona ekta unglingadrama,“ segja þær. Aðspurðar segja þær námskeiðið hafa kveikt meiri áhuga hjá þeim á kvikmyndagerð. „Þetta er ótrúlega skemmtilegt námskeið og það er eiginlega mun auðveldara en við héldum að gera svona stuttmyndir,“ segja þær. „Við fengum líka fyrirlestur um jafnrétti sem var mjög skemmtilegur og við lærðum ótrúlega margt,“ segja þær og bæta við að þar hafi þær til dæmis lært um það hvernig halli á konur í kvikmyndum.\r\n\r\n<strong>Ólafur Darri varð „star struck“</strong>\r\n\r\nÁ námskeiðið mætti svo leynigestur rétt fyrir hádegishlé á fimmtudaginn, en það var enginn annar en Ólafur Darri Ólafsson leikari sem kom til að spjalla við nemendurna. Það vakti mikla lukku þegar þau sáu hann ganga í salinn og höfðu krakkarnir margar spurningar fyrir hann. Ólafur Darri sagði krökkunum frá því hvernig hans ferill í leiklist hófst og hvatti þau sem vildu feril í leiklist til að gefast ekki upp. Hann sagði hvernig hann hafi ætlað að verða eins og Ingvar E Sigurðsson, fjórum árum eftir að hann byrjaði nám í leiklist, en svo fjórum árum síðar hafi hann verið rekinn frá Borgarleikhúsinu. „Höfnun er stór hluti af þessu starfi,“ sagði hann. Ólafur Darri sagði frá því að hann hafi verið þakklátur fyrir að ferillinn hafi farið hægt af stað og hann ekki orðið þekktur strax. Krakkarnir höfðu mikinn áhuga á að heyra hvernig það væri að vera frægur og fá að hitta fræga Hollywood leikara. Ólafur Darri sagði þeim frá því að þegar hann hitti Jennifer Aniston í fyrsta skipti hafi hann ekki komið upp orði því hann varð svo „star struck“. Eftir gott spjall þar sem Ólafur Darri sagði skemmtilegar sögur gátu krakkarnir fengið að taka myndir af sér með honum áður en boðið var upp á köku í tilefni afmælis Ólafs Darra sem var einmitt þennan dag.\r\n\r\n<em>Sjá í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Stelpur Filma í Borgarbyggð - Skessuhorn