Fréttir

true

Rannsókn á bruna á lokastigi

Rannsókn Lögreglunnar á Vesturlandi á bruna sem varð í Brekkubæjarskóla á Akranesi að kvöldi 13. janúar síðastliðinn er nú á lokastigi. Í tilkynningu lögreglu kemur fram að málið teljist upplýst og verði unnið í samvinnu með barnavernd. Við rannsókn málsins naut lögreglan á Vesturlandi liðsinnis tæknideildar LRH.Lesa meira

true

Brislingur er ný fisktegund við Ísland

Í nýjasta hefti Náttúrufræðingsins er grein um fisktegundina brisling sem hefur fundist í vaxandi mæli við Íslandsstrendur frá 2017. Í greininni er getið um alla þekkta fundarstaði brislings við landið hingað til. Brislingur er fremur strandlægur fiskur og hefur nú fundist víða við sunnan- og vestanvert landið, flestir út af Rangársandi og Landeyjasandi, í Faxaflóa,…Lesa meira

true

Alls yfir 300 í sóttkví og 200 í einangrun á Vesturlandi

Lögreglan á Vesturlandi birti í morgun nýjustu tölur yfir fjölda einstaklinga í sóttkví og einangrun á Vesturlandi og eru nú 330 í sóttkví og 201 í einangrun á Vesturlandi. Alls eru nú 226 í sóttkví og 92 í einangrun á Akranesi, 51 í sóttkví og 65 í einangrun í Borgarnesi og í Stykkishólmi eru 26…Lesa meira

true

Fimm smitaðir fyrir leikinn gegn Dönum í kvöld

Það bárust ekki góð tíðindi úr herbúðum íslenska landsliðsins í handbolta í gærkvöldi þegar í ljós kom að þrír leikmenn liðsins voru komnir með kóvid. Þetta eru þeir Björgvin Páll Gústavsson, Elvar Örn Jónsson og Ólafur Guðmundsson. Þeir fengu allir jákvætt úr PCR prófi og eru komnir í einangrun en eru allir með mjög lítil…Lesa meira

true

Suðvestan rok og hríðarveður um norðanvert landið allt frá Breiðafirði

Gul viðvörun Veðurstofunnar er nú í gildi fyrir næstu nótt og fram á morgundaginn vegna hvassviðris og hríðar frá Breiðafirði, Vestfjörðum og austur um og til Langaness. Við Breiðafjörð verður sunnan- og suðvestan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s og þar af leiðandi varasamt ferðaveður. Þá segir í tilkynningu frá Vegagerðinni að frá…Lesa meira

true

Matís og Stykkishólmsbær taka höndum saman

Stykkishólmsbær og Matís hafa gert með sér samkomulag um samstarf í Stykkishólmi með áherslu á fræðslu, nýsköpun, rannsóknir og atvinnuuppbyggingu innan sveitarfélagsins. „Báðir aðilar samkomulagsins munu nýta styrkleika sína og innviði viðkomandi aðila eins og kostur er,“ segir í tilkynningu. Stykkishólmsbær stofnaði til hugarflugsfundar með Matís, KPMG og fulltrúum atvinnulífsins á svæðinu 26. nóvember á…Lesa meira

true

FVA mætir FG í 8-liða úrslitum Gettu betur

16 liða úrslitum Gettu betur lauk í gærkvöldi og var síðan dregið í viðureignir 8-liða úrslitanna. Þar mætast í beinni í sjónvarpssal á RÚV eftirfarandi skólar: 4. febrúar Verzlunarskóli Íslands – Fjölbrautaskóli Suðurlands 11. febrúar Fjölbrautaskólinn í Garðabæ – Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi 18. febrúar Verkmenntaskóli Austurlands – Menntaskólinn í Reykjavík 25. febrúar Kvennaskólinn í…Lesa meira

true

Dalabyggð samþykkt í verkefnið Brothættar byggðir

Brothættar byggðir er verkefni sem Byggðastofnun hefur haldið utan um til nokkurra ára og er tilgangur þess að efla og styðja þær byggðir landsins sem standa höllustum fæti. Verkefnið byggir mikið á frumkvæði og samtakamætti heimafólks og hefur almennt gefist vel. Dalabyggð hefur sóst eftir þátttöku í verkefninu og nú fengið jákvætt svar. Fljótt á…Lesa meira

true

Álfasaga keypti rekstur Kræsinga í Borgarnesi

Árið 1999 var fyrirtækið Gæðakokkar stofnað í Mosfellsbæ. Árið 2007 flutti það starfsemina í Borgarnes og 2014 var nafninu breytt í Kræsingar. Eigendur Kræsinga voru hjónin Magnús Níelsson Hansen matreiðslumeistari og eiginkona hans, Vala Lee Jóhannsdóttir. Nú í haust ákváðu þau að selja rekstur og eignir fyrirtækisins. Kaupandinn er Álfasaga. Magnús samdi við kaupendurna um…Lesa meira

true

Skólaþing á sunnanverðu Snæfellsnesi á Zoom

Samstarfsnefnd um sameiningu Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar boðar til skólaþings laugardaginn 22. janúar milli kl. 13 og 15. Þetta kemur fram á vefsíðu Snæfellsbæjar. Markmiðið með sameiningu sveitarfélaganna tveggja er að styrkja byggð og samfélag á sunnanverðu Snæfellsnesi. Í því felst meðal annars að marka skýra skólastefnu til framtíðar og að á sunnanverðu Nesinu verði…Lesa meira