{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í nýjasta hefti Náttúrufræðingsins er grein um fisktegundina brisling sem hefur fundist í vaxandi mæli við Íslandsstrendur frá 2017. Í greininni er getið um alla þekkta fundarstaði brislings við landið hingað til. Brislingur er fremur strandlægur fiskur og hefur nú fundist víða við sunnan- og vestanvert landið, flestir út af Rangársandi og Landeyjasandi, í Faxaflóa, Arnarfirði og Ísafjarðardjúpi. Langflestir brislinganna voru kynþroska fiskar. „Brislingur er mikilvæg stærð í vistkerfinu í Eystrasalti og Norðursjó og spennandi verður að fylgjast með hvernig honum muni reiða af hér við land,“ segir í frétt frá Hafrannsóknastofnun.\r\n\r\nBrislingur líkist mjög ungsíld í útliti. Fiskifræðingar útiloka ekki þann möguleika að hér við land sé þessi fisktegund að vaxa og mögulega nýr nytjastofn að verða til.",
"innerBlocks": []
}
Brislingur er ný fisktegund við Ísland - Skessuhorn