
Gríðarleg spenna er fyrir Íslands og Danmerkur í kvöld. Ljósm. HSÍ
Fimm smitaðir fyrir leikinn gegn Dönum í kvöld
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Það bárust ekki góð tíðindi úr herbúðum íslenska landsliðsins í handbolta í gærkvöldi þegar í ljós kom að þrír leikmenn liðsins voru komnir með kóvid. Þetta eru þeir Björgvin Páll Gústavsson, Elvar Örn Jónsson og Ólafur Guðmundsson. Þeir fengu allir jákvætt úr PCR prófi og eru komnir í einangrun en eru allir með mjög lítil einkenni samkvæmt yfirlýsingu frá HSÍ. Þeir verða því ekki í hópnum í kvöld þegar Ísland mætir Danmörku í fyrsta leik í milliriðli.\r\n\r\nÍ morgun kom svo í ljós að fyrirliðinn Aron Pálmarsson og hornamaðurinn Bjarki Már Elísson eru einnig með kóvid. Aron og Bjarki eru herbergisfélagar og eru komnir í einangrun. Þeir féllu á hraðprófi í morgun og eru með einkenni. Þeir fóru svo í PCR próf til að fá endanlega staðfestingu á smitinu og ætti hún að berast fyrir leikinn í kvöld. Samkvæmt reglum mótsins þurfa smitaðir leikmenn að vera í einangrun í fimm daga og skila neikvæðu PCR prófi tvo daga í röð.\r\n\r\nEkki verður kallað á aðra leikmenn að svo stöddu enda telur íslenski hópurinn alls 20 manns. Þeir sem hafa verið utan hóps til þessa og koma inn í kvöld eru markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson og útileikmennirnir Kristján Örn Kristjánsson, Elvar Ásgeirsson og Daníel Þór Ingason. Leikmenn á EM eru prófaðir tvisvar á dag með einu hraðprófi og einu PCR prófi.\r\n\r\nLeikur Íslands og Danmerkur hefst klukkan 19.30 og verður sýndur í Ríkissjónvarpinu.",
"innerBlocks": []
}