Skólaþing á sunnanverðu Snæfellsnesi á Zoom

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Samstarfsnefnd um sameiningu Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar boðar til skólaþings laugardaginn 22. janúar milli kl. 13 og 15. Þetta kemur fram á vefsíðu Snæfellsbæjar. Markmiðið með sameiningu sveitarfélaganna tveggja er að styrkja byggð og samfélag á sunnanverðu Snæfellsnesi. Í því felst meðal annars að marka skýra skólastefnu til framtíðar og að á sunnanverðu Nesinu verði öflugur dreifbýlisskóli. Á Skólaþingi fer fram samráð við íbúa og skólasamfélagið sem er fyrsta skref í þeirri stefnumörkun.\r\n\r\nSkólaþingið er öllum opið en í ljósi samkomutakmarkana fer fundurinn fram rafrænt á Zoom. Tengill inn á fundinn verður aðgengilegur föstudaginn 21. janúar klukkan 17 á snb.is en þá er væntanlegum þátttakendum boðið að prófa að skrá sig inn á Zoom og læra á umhverfið.",
  "innerBlocks": []
}
Skólaþing á sunnanverðu Snæfellsnesi á Zoom - Skessuhorn