
Magnús með ylvolgar kjúklingabökur sem Álfasaga framleiðir. Ljósm. vaks.
Álfasaga keypti rekstur Kræsinga í Borgarnesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Árið 1999 var fyrirtækið Gæðakokkar stofnað í Mosfellsbæ. Árið 2007 flutti það starfsemina í Borgarnes og 2014 var nafninu breytt í Kræsingar. Eigendur Kræsinga voru hjónin Magnús Níelsson Hansen matreiðslumeistari og eiginkona hans, Vala Lee Jóhannsdóttir. Nú í haust ákváðu þau að selja rekstur og eignir fyrirtækisins. Kaupandinn er Álfasaga. Magnús samdi við kaupendurna um að starfa þar áfram og stýra vöruþróun. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til Magnúsar í fyrirtækið við Sólbakka í Borgarnesi og spjallaði við hann um þessar breytingar.\r\n\r\nMagnús segir að fyrirtækið sem keypti af þeim heiti Álfasaga en það rekur meðal annars Móður Náttúru og Dagnýju og Co. „Þetta eru fjársterkir aðilar með öfluga markaðssetningu og komu þeir til dæmis núna inn í dreifingu á Paté vörum sem við höfum verið að framleiða. Við erum mjög sterkir á því sviði og seldum núna fyrir síðustu jól eitthvað um tuttugu þúsund einingar af paté í þessum helstu verslunum; svo sem Krónunni, Hagkaup, Fjarðarkaupum og Melabúðinni. Álfasaga ætlaði fyrst einungis að kaupa tæki Kræsinga, en svo sáu forsvarsmenn þess það sem við höfum verið að gera og urðu mjög hrifnir. Þeir eru mjög sterkir á markaðinum og einnig í dreifingu þannig að þetta var hvalreki fyrir mig að fá þessa menn inn í dæmið,“ segir Magnús.\r\n\r\n<em>Nánar er rætt við Magnús í Skessuhorni vikunnar.</em>",
"innerBlocks": []
}