
Samstarfssamningur milli Dalabyggðar og UDN (Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga) var undirritaður miðvikudaginn 4. janúar. Það voru Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri og Jóhanna Sigrún Árnadóttir, formaður UDN sem undirrituðu samninginn. Í tilkynningu á vef Dalabyggðar segir að markmið samningsins sé m.a. að stuðla að auknu samstarfi milli UDN og Dalabyggðar á sviði íþrótta- og æskulýðsmála. Þannig…Lesa meira








