Fréttir

true

Mannamót landshlutanna verður í janúar

Búið að opna fyrir skráningar á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem verður haldið í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 19. janúar 2023 frá klukkan 12:00 til 17:00. Mannamót er fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu þar sem hátt í þúsund gestir hafa mætt og sýnendur verið um 250 talsins. Tilgangur Mannamóta er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustufólki sem…Lesa meira

true

Af boccía og ringó íþróttunum

Eftir dauf tvö ár er starfsemi íþrótta- og tómstundafélaga víðs vegar um landið að komast vel í gang. Boccía og ringó, pútt og margar fleiri greinar sem 50+ stunda eru komnar í fullan gang. Æfingar eru nokkuð vel sóttar og samskipti við félaga, sem áður voru mikil eru þessar vikurnar að hefja starfsemi á fullu…Lesa meira

true

Starfandi leikskólakennurum fækkar milli ára

Á vef Hagstofu Íslands kemur fram að í desember 2021 störfuðu 6.894 manns í leikskólum á Íslandi og hafði fjölgað um 117 frá fyrra ári. Karlar voru 8,4% og konur 91,6% starfsfólks. Leikskólakennurum fækkaði um 56 frá fyrra ári (-3,4%) en starfsfólki með aðra uppeldismenntun fjölgaði um 134 (+10,9%). Þá fjölgaði tveggja ára börnum í…Lesa meira

true

Tífalt meiri eftirspurn en framboð af greiðslumarki í sauðfé

Innlausnarmarkaður ársins 2022 með greiðslumark í sauðfé var haldinn 15. nóvember síðastliðinn. Matvælaráðuneytinu bárust 226 umsóknir um kaup og 22 umsóknir um sölu. Innlausnarverð ársins jafngildir beingreiðslum næstu tveggja ára og er 11.904 krónur á ærgildi. Sama verð gildir fyrir kaup og sölu og er ráðuneytið þannig einungis milligönguaðili. Alls var óskað eftir 57.425 ærgildum…Lesa meira

true

Framleiðir ilmvötn og leggings í Kristý

Oddný Þórunn Bragadóttir er eigandi verslunarinnar Kristý í Hyrnutorgi í Borgarnesi. Verslunin hóf starfsemi sína að Skúlagötu 13, þar sem Kaffi Kyrrð er staðsett í dag. Kristý fagnar 30 ára afmæli á þessu ári en Oddný hefur í gegnum tíðina verið eljusöm við framleiðslu og innflutning á vörumerkjum. Hún var m.a. fyrst til að selja…Lesa meira

true

Spila heimaleikina á útivelli

Knattspyrnudeild Skallagríms sendir tvö lið til keppni í vetur í 5. flokki karla og kvenna í Faxaflóamótinu. Vegna aðstöðuleysis í Borgarnesi þurfa liðin að spila heimaleiki sína á útivelli og ferðast til dæmis á Selfoss, Akranes og Álftanes og til Hafnarfjarðar, Ólafsvíkur og Kópavogs til að spila leikina. Jón Theodór Jónsson er yfirþjálfari og framkvæmdastjóri…Lesa meira

true

Vel tekið í þjóðlega veislu og skemmtan

Síðastliðið laugardagskvöld var boðað til stórveislu fyrir líkama og sál í félagsheimilinu Brautartungu í Lundarreykjadal. Þar tóku höndum saman Kvæðamannafélagið Snorri og Ungmennafélagið Dagrenning. Á matseðlinum voru svið og meðlæti en að því búnu stigu hagyrðingar á svið og skemmtu gestum. Það voru þau Jón Jens Kristjánsson, Helgi Björnsson, Þórdís Sigurbjörnsdóttir og Gunnar J Straumland…Lesa meira

true

Kynna breytingu á aðalskipulagi í Stykkishólmi

Miðvikudaginn í næstu viku, 30. nóvember, mun sameinað sveitarfélag Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar kynna fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi Stykkishólms. Kynningin fer fram á Amtsbókasafninu kl. 17-18. Auk breytingar á aðalskipulagi verða kynntar tillögur að nýjum deiliskipulagsáætlunum fyrir grænan iðngarð við Kallhamra og stækkun athafnasvæðis við Hamraenda. Í auglýsingu sem birtist í Skessuhorni sem kom út í…Lesa meira

true

Samfélagsvegir kynntir fyrir íbúum í Dölum

Opinn fundur var haldinn í Árbliki í Dölum sl. mánudagskvöld þar sem Haraldur Benediktsson alþingismaður kynnti hugmynd sem hann hefur unnið að í nokkurn tíma, um Samfélagsvegi. Skessuhorn greindi frá því í október að Haraldur hefði haldið slíkan fund í Húnaþingi vestra 4. október við góðar viðtökur heimamanna þar. Haraldur imprar reyndar á því að…Lesa meira

true

Aðventudagskrá í Borgarnesi á sunnudaginn

Sunnudaginn 27. nóvember nk. verður jólaandinn allsráðandi í Borgarnesi þegar upphaf aðventu gengur í garð. Dagskrá: Kl. 13:00 – 16:00 Jólasamverustund í Safnahúsi BorgarfjarðarJólakósý í Safnahúsinu – ný örsýning sem fangar jólaanda liðinna jóla með jólakortum og jólakveðjum. Jólaföndur á bókasafninu með kærleiksívafi. Notast verður við endurvinnanleg efni og geta íbúar skreytt útprentaðar jólakúlur með…Lesa meira