Fréttir

true

Roðagylltur heimur gegn kynbundnu ofbeldi

Soroptimistar um allan heim munu líkt og undanfarin ár slást í för með um 6000 samtökum í 187 löndum sem leidd eru af Sameinuðu þjóðunum til að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi gegn stúlkum og konum með þátttöku í 16 daga átakinu #roðagyllumheiminn, #orangetheworld. Roðagyllti liturinn sem er litur átaksins táknar bjartari framtíð án ofbeldis…Lesa meira

true

Límtré Vírnet með gæðavottun og eflir starfsstöðina í Borgarnesi

Vel hefur gengið hjá Límtré Vírneti undanfarið og horft hefur verið til þess að bæta tækjabúnað í öllum deildum fyrirtækisins til að mæta auknum verkefnum og stytta afgreiðslutíma. Fyrirtækið er með starfsstöðvar á þremur stöðum í dag; í Reykjavík, á Flúðum og í Borgarnesi. Í Borgarnesi er framleitt valsað stál og ál til klæðninga utanhúss…Lesa meira

true

Fimmtíu fengu nýliðastuðning í landbúnaði

Matvælaráðuneytið hefur úthlutað nýliðunarstuðningi í landbúnaði fyrir árið 2022 í samræmi við reglugerð um almennan stuðning við landbúnað. Markmiðið með stuðningnum er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði. Styrkur til einstakra nýliða getur að hámarki numið 9 milljónum króna og allt að 20% af fjárfestingarkostnaði á ári, en heimilt…Lesa meira

true

Bók um Halldór H. Jónsson arkitekt

Hið íslenska bókmenntafélag hefur gefið út bókina Halldór H. Jónsson arkitekt, eftir Björn Jón Bragason og Pétur H. Ármannsson. Bókin er hin veglegasta, um 250 blaðsíður að stærð og prýdd fjölda ljósmynda. Davíð Oddsson skrifar aðfararorð. Í bókinni er farið yfir feril og hönnun Halldórs Hauks Jónssonar (1912-1992) sem var Borgfirðingur og einn af merkustu…Lesa meira

true

Fullt út úr dyrum á Malavímarkaði

Í dag er góðgerðardagur í Grundaskóla til styrktar hjálparstarfi í Malaví. Undanfarna daga og vikur hafa nemendur og starfsfólk skólans undirbúið markaðinn en þar var til sölu fjölbreytilegur varningur. Fullt var út úr dyrum og margir með seðla á lofti til að tryggja sér fljóta og örugga afgreiðslu. Meðal annars var hægt að kaupa handverk…Lesa meira

true

Jólatrénu komið fyrir í Ólafsvík

Fyrsti sunnudagur í aðventu er nk. sunnudag. Af því tilefni verður víða í þéttbýli á Vesturlandi kveikt á ljósum jólatrjáa og fjölskylduskemmtanir verða í boði. Þá eru íbúar margir byrjaðir að lýsa upp skammdegið, ekki veitir af þar sem jörð er auð og dimmt yfir að líta. Í gærmorgun voru starfsmenn Snæfellsbæjar að koma upp…Lesa meira

true

LED-væða götuljós í Búðardal

Í Búðardal er nú hafin LED-væðing götulýsingar en í því felst að skipta út lömpum á ljósastaurum. Á vef Dalabyggðar kemur fram að búið er að skipta um lampa á Miðbraut, Ægisbraut og Borgarbraut og verði haldið áfram frekari LED-væðingu á næstu misserum samhliða því að skipta um perur og viðhalda eldri staurum. Þá segir…Lesa meira

true

Það geta allir spilað keilu

Rætt við Ársæl Rafn Erlingsson formann Keilufélags Akraness Keilufélag Akraness (KFA) var stofnað árið 1997 og keilusalurinn var opnaður árið 2001. Markmið félagsins er að stuðla að iðkun keilu og að glæða áhuga á þeirri íþrótt. Í stjórn félagsins ásamt Ársæli Rafni Erlingssyni formanni eru þau Fríður Ósk Kristjánsdóttir, Jónína Björg Magnúsdóttir, Garðar Tómasson og…Lesa meira

true

Snæfell tapaði fyrir Þór Akureyri eftir átta leikja sigurhrinu

Þar kom að því. Eftir átta sigurleiki í röð í 1. deild kvenna í körfuknattleik þurftu Snæfellskonur að játa sig sigraða í gærkvöldi. Þær mættu fullar sjálfstraust norður yfir heiðar til að takast á við Þór Akureyri og útlit fyrir hörkuleik þar sem liðin sátu í 2. og 3. sæti deildarinnar en Snæfell þó með…Lesa meira