Borgarneskirkja. Ljósm. mm.

Bók um Halldór H. Jónsson arkitekt

Hið íslenska bókmenntafélag hefur gefið út bókina Halldór H. Jónsson arkitekt, eftir Björn Jón Bragason og Pétur H. Ármannsson. Bókin er hin veglegasta, um 250 blaðsíður að stærð og prýdd fjölda ljósmynda. Davíð Oddsson skrifar aðfararorð. Í bókinni er farið yfir feril og hönnun Halldórs Hauks Jónssonar (1912-1992) sem var Borgfirðingur og einn af merkustu arkitektum landsins, fæddur og uppalinn í Borgarnesi.