Fréttir

true

Víkingur Ó og Höttur/Huginn gerðu jafntefli

Víkingur Ólafsvík tók á móti liði Hattar/Hugins á Ólafsvíkurvelli í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og skiptu liðin bróðurlega með sér stigunum, lokatölur 1-1. Brynjar Vilhjálmsson kom Víkingi yfir í byrjun seinni hálfleiks með sínu fjórða marki í deildinni í sumar en Stefán Ómar Magnússon jafnaði metin fyrir gestina á 69. mínútu og…Lesa meira

true

Reynir tapaði fyrir KFB

KFB og Reynir Hellissandi mættust á Álftanesi í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu á föstudaginn og unnu heimamenn í KFB stórsigur, 4-1. Það voru þó gestirnir sem skoruðu fyrsta mark leiksins strax á fjórðu mínútu með marki frá Benedikt Osterhammer Gunnarssyni. Reynismenn urðu síðan fyrir áfalli þegar lykilmaður í vörn þeirra, Kristófer James…Lesa meira

true

Tveggja ára hélt listsýningu

Jóhanna Ingibjörg Jónsdóttir er tveggja ára upprennandi listakona sem býr í Stykkishólmi. Um verslunarmannahelgina gerði hún sér lítið fyrir og málaði málverk á pallinum heima hjá sér sem hún hengdi svo upp til sýnis fyrir gesti og gangandi að líta á. Sólrún Ösp Jóhannsdóttir, móðir Jóhönnu, sendi Skessuhorni meðfylgjandi mynd frá sýningunni.Lesa meira

true

Nýir eigendur að Mæstró matarvagni

Baldur Orri Rafnsson hefur rekið Mæstró matarvagninn síðan 2011 og hefur hann verið staðsettur í Grundarfirði öll sumur síðan þá. Miðvikudaginn 3. ágúst síðastliðinn tóku nýir eigendur við lyklunum og munu reka vagninn í framtíðinni. Sami matseðill verður áfram en þó munu líklega einhverjar nýjungar líta dagsins ljós. Þau Sólveig Ásta Bergvinsdóttir og Almar Þorleifsson,…Lesa meira

true

Löður væntanlegt á Akranes fyrir árslok

Nýverið fékk Löður samþykkta umsókn fyrir sjálfvirka bílaþvottastöð á Akranesi. Stöðin verður staðsett við bensínafgreiðslu Orkunnar að Skagabraut 43 og fyrirhugað er að bætt verði við lóðina tveimur byggingarreitum fyrir bílaþvottastöðina auk geymsluskúrs. Bílaþvottastöðin Löður hefur verið starfandi síðan árið 2000. Alls eru 15 stöðvar á landinu; þrettán eru á höfuðborgarsvæðinu, ein á Akureyri og…Lesa meira

true

Borgfirðingar höfðu sigur á Skagamönnum í púttkeppni sumarsins

Eldri borgarar af Akranesi og úr Borgarbyggð háðu síðustu púttkeppni sumarsins af þremur að Nesi í Reykholtsdal síðastliðinn fimmtudag. Til leiks mættu 43 keppendur. Í sumar var leikið á þremur stöðum; Hamri, Akranesi og í Nesi. Borgarbyggð hafði betur í síðasta mótinu með 451 höggum gegn 466 höggum Akurnesinga. Lokatölur sumarsins urðu því 1390 gegn…Lesa meira

true

Slys á Steingrímsfjarðarheiði

Björgunarsveitir af vestanverðu landinu voru klukkan 14:18 í dag kallaðar til aðstoðar félögum sínum á Ströndum eftir slys þar sem maður hafði hrasað og fallið um þrjátíu metra niður gil við foss í Norðdal inn af Steingrímsfirði, skammt frá veginum þar sem ekið er upp á Steingrímsfjarðarheiði. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins, en samkvæmt upplýsingum…Lesa meira

true

Perla Sól yngst Íslandsmeistara í golfi

Íslandsmótinu í golfi lauk í Vestmanneyjum í dag en mótið hófst á fimmtudaginn. Perla Sól Sigurbrandsdóttir GR og Kristján Þór Einarsson GM eru Íslandsmeistarar í golfi 2022. Þetta er í fyrsta sinn sem hin 15 ára Perla Sól fagnar þessum titli og í annað sinn sem Kristján Þór sigrar á Íslandsmótinu, en hann sigraði árið…Lesa meira

true

Dróttskátar komu saman á Hömrum

Á annað hundrað dróttskátar af landinu sameinuðust um helgina í útilífsmiðstöðinni á Hömrum við Akureyri til að byggja upp nýja siðmenningu, eins og það er orðað í tilkynningu frá Landssambandi íslenskra skáta. Dróttskátarnir eru ungmenni í 8.-10. bekk grunnskóla. Skátarnir skiptust niður í þorp þar sem hvert þorp þurfti að vinna sér inn gjaldeyri til…Lesa meira

true

Stærsti skjálftinn frá því gosið hófst

Jarðskjálfti sem átti upptök sín vestan við Kleifarvatn og var að stærðinni 4,1 varð kl. 11:52 í dag. Fannst hann vel á höfuðborgarsvæðinu og alla leið í Borgarfjörð samkvæmt upplýsingum Skessuhorns. Þetta er jafnframt stærsti skjálftinn síðan gosið í Meradölum hófst síðastliðinn miðvikudag. Um er að ræða svokallaðan gikkskjálfta sem talinn er skýrast af því…Lesa meira