Dróttskátar komu saman á Hömrum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á annað hundrað dróttskátar af landinu sameinuðust um helgina í útilífsmiðstöðinni á Hömrum við Akureyri til að byggja upp nýja siðmenningu, eins og það er orðað í tilkynningu frá Landssambandi íslenskra skáta. Dróttskátarnir eru ungmenni í 8.-10. bekk grunnskóla. Skátarnir skiptust niður í þorp þar sem hvert þorp þurfti að vinna sér inn gjaldeyri til þess að kaupa sér inn mat og aðrar nauðsynjar. Þau unnu sér inn gjaldmiðil með því að taka þátt í dagskrá og öðrum samfélagsverkefnum. Sem dæmi virkjuðu skátarnir Brunná, byggðu brú, könnuðu ný landsvæði og bjuggu til kol fyrir eldamennskuna. „Skátarnir hafa skemmt sér vel, eignast nýja vini og munu koma heim fullir af þekkingu sem mun endast þeim áfram út lífið,“ segir í tilkynningunni.",
  "innerBlocks": []
}
Dróttskátar komu saman á Hömrum - Skessuhorn