
Þau Rannveig Finnsdóttir og Guðmundur A Arason tóku á móti Húsasmiðjubikarnum fyrir hönd Borgfirðinga. Ljósm. Flemming Jessen.
Borgfirðingar höfðu sigur á Skagamönnum í púttkeppni sumarsins
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eldri borgarar af Akranesi og úr Borgarbyggð háðu síðustu púttkeppni sumarsins af þremur að Nesi í Reykholtsdal síðastliðinn fimmtudag. Til leiks mættu 43 keppendur. Í sumar var leikið á þremur stöðum; Hamri, Akranesi og í Nesi. Borgarbyggð hafði betur í síðasta mótinu með 451 höggum gegn 466 höggum Akurnesinga. Lokatölur sumarsins urðu því 1390 gegn 1429 höggum Borgarbyggð í vil. Árangur sjö bestu spilara telur hverju sinni. Rannveig Finnsdóttir og Guðmundur A. Arason tóku á móti Húsasmiðju bikarnum fyrir hönd Borgfirðinga. Þau léku best félaga sinna í lokakeppninni.\r\n\r\nLeikið var í stilltu en heldur svölu veðri á fimmtudaginn. Í einstaklingskeppninni var Gestur Sveinbjörnsson hlutskarpastur með 198 högg, Guðrún Helga Andrésdóttir varð önnur með 199 og Sveinn Hallgrímsson þriðji með 203 högg. Alls tóku 66 þátt í þessum mótum sumarsins, en þeim stjórnuðu þeir Flemming Jessen, Ingimundur Ingimundarson og Þorvaldur Valgarðsson. Næsta verkefni púttara er Íslandsmót sem haldið verður á Ísafirði 19. ágúst og septemberpútt að Hamri 8. september.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_55224\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-55224 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/08/Borgfirdingar-hofdu-sigur-a-Skagamonnum-i-putti_2-600x428.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"428\" /> Skagamaðurinn Gestur Sveinbjörnsson varð hlutskarpastur í einstaklingskeppni sumarsins.[/caption]",
"innerBlocks": []
}